Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 24.4.2017

24.4.2017 14:21

Færð og aðstæður

Það er greiðfært á Suður- og Vesturlandi.

Á Vestfjörðum eru sumstaðar hálkublettir á heiðum og hálsum en greiðfært að mestu á láglendi. Hrafnseyrarheiði og Dynjandisheiði eru ófærar en unnið er að mokstri. Snjóþekja er norður í Árneshrepp.

Vegir á Norðurlandi vestra eru víðast auðir þótt hálkublettir séu á fáeinum köflum. Á Norðurlandi eystra er hálka, hálkublettir og sumstaðar skafrenningur.

Það er hálka, hálkublettir og sumstaðar skafrenningur á vegum á Austurlandi. Hvassviðri er einnig austanlands.

Vegir eru greiðfærir á Suðausturlandi en sumstaðar hvasst.

Hvalfjarðargöng næturlokanir

Vegna viðhalds og þrifa verða göngin lokuð:

Frá kl. 22 að kvöldi mánudags 24. apríl til kl. 6 að morgni þriðjudags 25. apríl.

Frá miðnætti að kvöldi þriðjudags 25. apríl til kl. 6 að morgni miðvikudags 26. apríl.

Frá miðnætti að kvöldi miðvikudags 26. apríl til kl. 6 að morgni fimmtudags 27. apríl.

Frá miðnætti að kvöldi fimmtudags 27. apríl til kl. 6 að morgni föstudags 28. apríl

Umferðartafir á Reykjanesbraut sunnan Hafnarfjarðar

Vinna er hafin við gerð mislægra vegamóta Reykjanesbrautar í Hafnarfirði og Krýsuvíkurvegar.

Vegna framkvæmdanna þarf að takamarka umferðarhraða á framkvæmdasvæðinu og færa hann niður í 50 km/klst. Vegna sprenginga þarf að stöðva umferð um vinnusvæðið á Reykjanesbraut í skamman tíma, allt að þrisvar sinnum á dag. Umferð verður stöðvuð í 2-3 mínútur í senn af þessum sökum.

Vegfarendur eru hvattir til að sýna aðgát og virða umferðarmerkingar við vinnusvæðið.

Lokun Eyravegs á Selfossi

Lokun á þjóðvegi nr. 34 við gatnamót Eyravegar og Kirkjuvegar á Selfossi

Sjá nánar hér.

Þungatakmarkanir

Þeim sérstöku ásþungatakmörkunum sem hafa verið í gildi á Vesturlandi og á Vestfjörðum að undanförnu  verður aflétt þriðjudaginn 25. apríl kl. 08:00.  Þetta á þó ekki við 7 tonna ásþunga á Bíldudalsvegi (63) milli Bíldudals og Dynjandisheiðar og Vestfjarðavegar (60) milli Flókalundar og Þingeyrar.

Borgarfjarðarbrú

Vegna vinnu við Borgarfjarðarbrú er önnur akreinin lokuð og umferð er stýrt með ljósum. Áætluð verklok eru um miðjan júní.