Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 24.3.2017

24.3.2017 17:18

Ábendingar frá veðurfræðingi 

Vakin er athygli á því að verulega getur munað um aðstæður til aksturs á láglendi og lægri fjallvegum og þeim hærri. Einkum á þetta við um Steingrímsfjarðarheiði og Öxnadalsheiði.  Skil ganga yfir í kvöld og á Steingrímsfjarðarheiði má gera ráð fyrir hríðarveðri og dimmum skafrenningi. Á Öxnadalsheiði snýst síðan aftur í óhagstæða SV-átt seint í nótt og með stormi og lélegu skyggni vel fram á morgundaginn.

Færð og aðstæður

Vegir á Suðurlandi eru að mestu auðir. Það er nokkuð hvasst á Sandskeiðinu.

Það er víðast hvar greiðfært á Vesturlandi en þó hálkublettir m.a. á Vatnaleið og Fróðárheiði.

Hálkublettir, hálka eða snjóþekja er á fjallvegum á Vestfjörðum en nánast autt á láglendi.

Á Norðurlandi vestra er sums staðar nokkur hálka á útvegum og raunar eru hálkublettir á Vatnsskarði.
Snjóþekja er á Öxnadalsheiði en hálkublettir á Mývatnsöræfum.

Það er snjóþekja á Vopnafjarðarheiði og hálka á Möðrudalsöræfum. Aðalleiðir á Austurlandi eru þó víðast auðar eða aðeins í hálkublettum. Vegur er einnig auður með suðausturströndinni.

Þungatakmarkanir

Vegna hættu á slitlagsskemmdum hefur viðauki 1 verið felldur úr gildi og ásþungi takmarkaður við 10 tonn frá  á eftirtöldum vegum: Vestfjarðavegi 60 frá Hringvegi 1 við Dalsmynni, Barðastrandarvegi 62, Bíldudalsvegi 63, Djúpvegi 61 að Flugvallarvegi Skutulsfirði, Laxárdalsheiði 59, Innstrandavegi 68 frá Borðeyri og á Drangsnesvegi 643.

Borgarfjarðarbrú

Vegna vinnu við Borgarfjarðarbrú er önnur akreinin lokuð og umferð er stýrt með ljósum. Áætluð verklok eru 15. júní 2017.