Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 24.3.2017

24.3.2017 12:47


Lokað er á Öxnadalsheiði vegna óveðurs.

Færð og aðstæður

Hálkublettir eru víða á Suðurlandi.

Á Vesturlandi eru hálkublettir víða en snjóþekja er á Holtavörðuheiði .

Á Vestfjörðum er snjóþekja á Steingrímsfjarðarheiði og Þröskuldum, hálka eða snjóþekja er á öðrum leiðum.

Hálka eða hálkublettir eru mjög víða á Norðurlandi vestra. Norðaustanlands er hálka á flestum fjallvegum en greiðfært að mestu á láglendi.

Á Austurlandi er hálka eða hálkublettir á flestum leiðum. Greiðfært er að mestu með suðausturströndinni.

Þungatakmarkanir

Vegna hættu á slitlagsskemmdum verður viðauki 1 felldur úr gildi og ásþungi takmarkaður við 10 tonn frá kl. 12:00 föstudaginn 24. mars, á eftirtöldum vegum: Vestfjarðavegi 60 frá Hringvegi 1 við Dalsmynni, Barðastrandarvegi 62, Bíldudalsvegi 63, Djúpvegi 61 að Flugvallarvegi Skutulsfirði, Laxárdalsheiði 59, Innstrandavegi 68 frá Borðeyri og á Drangsnesvegi 643.

Borgarfjarðarbrú

Vegna vinnu við Borgarfjarðarbrú er önnur akreinin lokuð og umferð er stýrt með ljósum. Áætluð verklok eru 15. júní 2017.