Umferðarþjónusta - Tilkynning - 24.3.2017
Ábendingar
frá veðurfræðingi
Vakin er
athygli á því að verulega getur munað um aðstæður til aksturs á láglendi og
lægri fjallvegum og þeim hærri. Einkum á þetta við um Steingrímsfjarðarheiði og
Öxnadalsheiði. Skil ganga yfir í kvöld og á Steingrímsfjarðarheiði
má gera ráð fyrir hríðarveðri og dimmum skafrenningi. Á Öxnadalsheiði snýst
síðan aftur í óhagstæða SV-átt seint í nótt og með stormi og lélegu skyggni
vel fram á morgundaginn.
Færð og aðstæður
Vegir á Suðurlandi eru að mestu auðir.
Það er víðast hvar greiðfært á Vesturlandi en þó eru hálkublettir m.a. á Holtavörðuheiði og Svínadal, krap á Bröttubrekku.
Hálkublettir, hálka eða snjóþekja er á heiðum og hálsum á Vestfjörðum en nánast autt á láglendi.
Nokkur hálka er yfir Mývatns- og Möðrudalsöræfi. Aðalleiðir á Austurlandi eru víðast auðar eða aðeins í hálkublettum. Vegur er einnig auður með suðausturströndinni en varað er við sandfoki við Hvalnes.
Þungatakmarkanir
Vegna hættu á slitlagsskemmdum hefur viðauki 1 verið felldur úr gildi og ásþungi takmarkaður við 10 tonn frá á eftirtöldum vegum: Vestfjarðavegi 60 frá Hringvegi 1 við Dalsmynni, Barðastrandarvegi 62, Bíldudalsvegi 63, Djúpvegi 61 að Flugvallarvegi Skutulsfirði, Laxárdalsheiði 59, Innstrandavegi 68 frá Borðeyri og á Drangsnesvegi 643.
Borgarfjarðarbrú
Vegna vinnu við Borgarfjarðarbrú er önnur akreinin lokuð og umferð er stýrt með ljósum. Áætluð verklok eru 15. júní 2017.