Umferðarþjónusta - Tilkynning - 24.3.2017
Ath!
Umferðaljós eru biluð á Borgarfjarðarbrúnni. viðgerð stendur yfir.
Færð og aðstæður
Hálka er á Hellisheiði og Þrengslum. Hálkublettir og snjóþekja eru víða á Suðurlandi.
Á Vesturlandi eru hálkublettir víða en hálka og snjóþekja á Holtavörðuheiði, ófært er á Bröttubrekku.
Á Vestfjörðum er þungfært á Steingrímsfjarðarheiði og þæfingur á Þröskuldum og Hálfdáni, hálka eða snjóþekja er á öðrum leiðum.
Á Austurlandi er hálka eða hálkublettir á flestum leiðum. Greiðfært er að mestu með suðausturströndinni.
Þungatakmarkanir
Vegna hættu á slitlagsskemmdum verður viðauki 1 felldur úr gildi og ásþungi takmarkaður við 10 tonn frá kl. 12:00 föstudaginn 24. mars, á eftirtöldum vegum: Vestfjarðavegi 60 frá Hringvegi 1 við Dalsmynni, Barðastrandarvegi 62, Bíldudalsvegi 63, Djúpvegi 61 að Flugvallarvegi Skutulsfirði, Laxárdalsheiði 59, Innstrandavegi 68 frá Borðeyri og á Drangsnesvegi 643.
Borgarfjarðarbrú
Vegna vinnu við Borgarfjarðarbrú er önnur akreinin lokuð og umferð er stýrt með ljósum. Áætluð verklok eru 15. júní 2017.