Umferðarþjónusta - Tilkynning - 23.9.2018
Færð
Greiðfært er orðið um mest allt land þó eru eitthvað um hálkubletti eða snjóþekju á fáfarnari leiðum.
Framkvæmdir
Mánudaginn 24. september hefst viðgerð á brú yfir Vesturlandsveg við Leirvogstungumel og verður umferð af Vesturlandsvegi færð á hjáleið á meðan viðgerð stendur. Viðgerðin mun standa yfir í 4 daga.
Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin.
Hálendi
Víða á hálendinu er færð farin að spillast og vegfarendur beðnir að kanna aðstæður áður en farið er inn á hálendisvegi.
Framkvæmdir við Esjumela
Á næstu vikum verður unnið að byggingu hringtorgs og undirganga fyrir gangandi auk vega- og stígagerðar á Esjumelum við Norðurgrafarveg og verður umferð um Vesturlandsveg beint um hjáleið framhjá vinnusvæðinu. Hámarkshraði um framkvæmdasvæðið er 50 km/klst og eru ökumenn hvattir til að virða merkingar á vinnusvæðinu.