Umferðarþjónusta - Tilkynning - 23.6.2017
Ábendingar frá veðurfræðingi
Sunnan undir Vatnajökli frá Kvískerjum og austur fyrir Lón
má reikna með hvössum vindi og hviðum staðbundið allt að 30-35 m/s alveg þar til
seint í kvöld eða nótt. Einnig er hvasst við Lómagnúp og um miðjan dag
kemur vindur líka til með að rjúka upp á Mýrdalssandi. Þá er vakin
athygli á því að sérlega mikið kemur til með að rigna austanlands, einkum á
Austfjörðum og ekki hægt að útiloka grjóthrun á vegi við þær aðstæður síðar í
dag og í nótt.
Hjólreiðakeppnin WOW Cyclothon
Nú stendur yfir hjólreiðakeppnin WOW Cyclothon þar sem hjólað er réttsælis hringinn í kringum landið. Þátttakendur hjóla nú um Suðurland og er farið frá Selfossi niður í Ölfus og svo um Suðurstrandarveg og Krýsuvíkurveg til Hafnarfjarðar. Mikilvægt er að vegfarendur sýni sérstaka aðgát og tillitsemi meðan svo margt hjólafólk er á ferðinni.
Malbikun á Höfuðborgarsvæðinu
Í dag verður unnið við malbikun á báðum akreinum á Reykjavíkurvegi, frá gatnamótum Engidals að Stakkahrauni. Báðum akreinum verður lokað á meðan, það verður sett upp hjáleið og má búast við umferðartöfum frá kl. 09:00 til kl. 16:00.
Einnig verður hringtorg við Nónhæð malbikað. Arnarnesvegur verður lokaður til vesturs, sett verður upp hjáleið og má búast við umferðartöfum frá kl. 12:00 til kl. 18:00.
Vaðlaheiðarvegur
Vaðlaheiðarvegur 832 hefur verið opnaður að hluta, þ.e. 12 km kafli upp úr Eyjafirði en vegna framkvæmda við Vaðlaheiðargöng í Fnjóskadal er ekki hægt að láta umferð fara um vinnusvæðið við Skóga, því er veginum lokað við Ytra Nesgil. Öll umferð upp úr Fnjóskadal er því bönnuð.
Framkvæmdir á Reykjanesbraut og Krýsuvíkurvegi
Unnið er við mislæg
vegamót Reykjanesbrautar og Krýsuvíkurvegar í Hafnarfirði. Umferð fer á kafla um hjáleið á
Reykjanesbraut sunnan Hafnarfjarðar. Leyfður umferðarhraði þar er 50 km/klst. Vegna vinnu við
sprengingar á framkvæmdasvæðinu þarf að stöðva umferð á Reykjanesbraut í skamman
tíma, allt að þrisvar sinnum á dag.
Krýsuvíkurvegi hefur verið lokað tímabundið, milli Rauðhellu og hringtorgs við Hraunhellu / Hringhellu. Merkt hjáleið er um Rauðhellu og Hringhellu á meðan lokun Krýsuvíkurvegar varir (u.þ.b. til 24 júní).
Einnig er verið að byggja nýtt hringtorg á Krýsuvíkurvegi (42), en um er að ræða gatnatengingar að Dofrahellu og Ásvallabraut (Klukkutorg). Í upphafi verður unnið meðfram Krýsuvíkurvegi (42) og síðar í sumar verður umferð færð yfir á hjáleið við hlið framkvæmdasvæðis. Gert er ráð fyrir að hringtorgið verði tekið í notkun 1. september 2017. - Vegfarendur eru beðnir að sýna aðgát og virða umferðarmerkingar við vinnusvæðin.
Umferðartafir á Hringvegi
Vegna endurbóta á Hringvegi í Reykjadal í Suður-Þingeyjarsýslu er umferðarhraði takmarkaður við 50 km/klst á framkvæmdasvæðinu fram í miðjan júlí. Þrengt er að umferð og má búast við lítilsháttar umferðartöfum á meðan framkvæmdir standa yfir. - Vegfarendur eru beðnir um að virða hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðið þar sem menn og tæki eru við vinnu á og við akbrautina.
Búast má við umtalsverðum umferðartöfum á brúnni á Jökulsá í Lóni, um 20-30 mín í senn, milli kl 07.00 – 19.00 fram til 15. júlí vegna framkvæmda.