Umferðarþjónusta - Tilkynning - 23.5.2017
Þungatakmarkanir á Vestfjarðarvegi (60)
Vegna framkvæmda við brú á Þverdalsá verða ásþungi takmarkaður við 2 tonn frá Flókalundi að Helluskarði til kl. 12:00 fimmtudaginn 25. maí. Við bendum á hjáleið um Barðastrandaveg nr. 62 og Bíldudalsveg nr. 63.
Umferðartafir á Höfuðborgarsvæðinu
Í dag þriðjudaginn 23. maí er stefnt að því að fræsa og malbika ystu akrein á Vesturlandsvegi til austurs, frá N1 í Ártúnsbrekku og að Skeljungi við Vesturlandsveg og verður akreinin lokuð á meðan. Þrengt verður að umferð og má búast við lítilsháttar umferðartöfum. Lokanir verða merktar meðan á framkvæmd stendur. Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli kl. 9:00 til kl. 17:00.
Vegfarendur eru beðnir um að virða lokanir og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.
Umferðartafir á Hringvegi
Vegna endurbóta á Hringvegi í Reykjadal í Suður-Þingeyjarsýslu verður umferðarhraði takmarkaður við 50 km/klst á framkvæmdasvæðinu fram í miðjan júlí. Þrengt verður að umferð og má búast við lítilsháttar umferðartöfum á meðan framkvæmdir standa yfir.
Vegfarendur eru beðnir um að virða hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðið þar sem menn og tæki eru við vinnu á og við akbrautina.
Umferðartafir við Jökulsá í Lóni
Búast má við umtalsverðum umferðartöfum á brúnni á Jökulsá í Lóni, um 20-30 mín í senn,
milli kl 07.00 – 19.00 fram til 30. júní vegna framkvæmda.
Hálendisvegir að vori
Þegar frost er að fara úr jörð getur jarðvegur orðið mjög gljúpur og viðkvæmur. Þetta á m.a. við um lélega malarvegi og frumstæða slóða líkt og á hálendinu. Akstur er þá bannaður til að koma í veg fyrir skemmdir, bæði á vegunum sjálfum og landi og gróðri sem geta skemmst illa ef ekið er út fyrir veg. Akstursbann hefur nú verið sett á nokkra vegi eins og sjá má á færðarkortinu.Lokun Eyravegar á Selfossi
Gatnamót Eyravegar og Kirkjuvegar á Selfossi eru lokuð vegna lagnaframkvæmda. Umferð er vísað hjáleið um Tryggvagötu meðan á framkvæmdum stendur. Vonast er til að vinnu ljúki í fyrstu viku júní. Sjá nánar hér.
Borgarfjarðarbrú
Vegna vinnu við Borgarfjarðarbrú er önnur akreinin lokuð og umferð er stýrt með ljósum. Áætluð verklok eru um miðjan júní.