Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 23.4.2017

23.4.2017 11:22

Færð og aðstæður

Það er greiðfært um sunnanvert landið.

Á Vesturlandi er hálka á Holtavörðuheiði og hálkublettir m.a. á Bröttubrekku, Fróðárheiði og Svínadal. 

Á Vestfjörðum eru sums staðar hálkublettir á heiðum og hálsum en greiðfært að mestu á láglendi. Ófært er á Hrafnseyrarheiði og Dynjandisheiði.  Snjóþekja er á Þröskuldum og á Ströndum, þó þæfingur á kaflanum úr Bjarnarfirði í Gjögur.

Vegir eru auðir í Húnavatnssýslum en þar fyrir austan er á köflum nokkur hálka og sums staðar skafrenningur eða él.

Það er hálka og skafrenningur á Möðrudalsöræfum og eins á Fjarðarheiði en annars eru vegir á Austurlandi ýmist með hálkublettum eða alveg auðir.

Umferðartafir á Reykjanesbraut sunnan Hafnarfjarðar

Vinna er hafin við gerð mislægra vegamóta Reykjanesbrautar í Hafnarfirði og Krýsuvíkurvegar.

Vegna framkvæmdanna þarf að takamarka umferðarhraða á framkvæmdasvæðinu og færa hann niður í 50 km/klst. Vegna sprenginga þarf að stöðva umferð um vinnusvæðið á Reykjanesbraut í skamman tíma, allt að þrisvar sinnum á dag. Umferð verður stöðvuð í 2-3 mínútur í senn af þessum sökum.

Vegfarendur eru hvattir til að sýna aðgát og virða umferðarmerkingar við vinnusvæðið.

Þungatakmarkanir

Vegna hættu á slitlagsskemmdum eru þungatakmarkanir á köflum á Vesturlandi og Vestfjörðum. Víðast er um að ræða 10 tonna ásþungatakmarkanir en þó er ásþungi takmarkaður við 7 tonn á Bíldudalsvegi (63) frá Bíldudalsflugvelli að Vestfjarðavegi (60) við Helluskarð og á Vestfjarðavegi (60) frá Flókalundi að Þingeyri.

Borgarfjarðarbrú

Hlé var gert á vinnu við Borgarfjarðarbrú um páskana og verða báðar akreinar opnar til 23. apríl. Athugið að framkvæmdum er ekki lokið og akreinar eru ekki í fullri vegbreidd. Umferðarstýring er á gulu blikki og hraði takmarkaður við 30 km/klst.  Vinna hefst að nýju mánudaginn 24. apríl.