Umferðarþjónusta - Tilkynning - 23.4.2017
Færð og aðstæður
Á Suðurlandi eru hálkublettir en vegir á Vesturlandi eru að mestu greiðfærir en hálkublettir eru á Bröttubrekku og Fróðárheiði, hálka er á Holtavörðuheiði.
Á Vestfjörðum eru sums staðar hálkublettir á heiðum og hálsum en greiðfært að mestu á láglendi. Ófært er á Hrafnseyrarheiði og
Dynjandisheiði en vegna snjóflóðahættu verður ekki mokað fyrr en eftir helgi.
Vegir á Norðurlandi vestra eru auðir að mestu en þó er hálka og snjóþekja á Siglufjarðarvegi og hálka á Þverárfjalli og Öxnadalsheiði.
Á Norðausturlandi er hálka eða hálkublettir mjög víða en snjóþekja og éljagangur er í Köldukinn og á Tjörnesi en þæfingur og skafrenningur á Hófaskarði og Raufarhafnarvegi.
Hálka er á kafla á Möðrudalsöræfum og á Fjarðarheiði en annars eru vegir auðir á Austurlandi.
Hálkublettir eru frá Kirkjubæjarklaustri í Vík og hálka á Reynisfjalli annars er greiðfært með Suðausturströndinni.
Umferðartafir á Reykjanesbraut sunnan Hafnarfjarðar
Vinna er hafin við gerð
mislægra vegamóta Reykjanesbrautar í Hafnarfirði og Krýsuvíkurvegar.
Vegna framkvæmdanna þarf að takamarka umferðarhraða á framkvæmdasvæðinu og færa hann niður í 50 km/klst. Vegna sprenginga þarf að stöðva umferð um vinnusvæðið á Reykjanesbraut í skamman tíma, allt að þrisvar sinnum á dag. Umferð verður stöðvuð í 2-3 mínútur í senn af þessum sökum.
Vegfarendur eru hvattir til að sýna aðgát og virða umferðarmerkingar við vinnusvæðið.
Þungatakmarkanir
Vegna hættu á slitlagsskemmdum eru þungatakmarkanir á köflum á Vesturlandi og Vestfjörðum. Víðast er um að ræða 10 tonna ásþungatakmarkanir en þó er ásþungi takmarkaður við 7 tonn á Bíldudalsvegi (63) frá Bíldudalsflugvelli að Vestfjarðavegi (60) við Helluskarð og á Vestfjarðavegi (60) frá Flókalundi að Þingeyri.Borgarfjarðarbrú
Hlé var gert á vinnu við Borgarfjarðarbrú um páskana og verða báðar akreinar opnar til 23. apríl. Athugið að framkvæmdum er ekki lokið og akreinar eru ekki í fullri vegbreidd. Umferðarstýring er á gulu blikki og hraði takmarkaður við 30 km/klst. Vinna hefst að nýju mánudaginn 24. apríl.