Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 23.3.2017

23.3.2017 7:48

Færð og aðstæður

Það er hálka og mjög hvasst á Sandskeiði og snjóþekja og skafrenningur á Hellisheiði, Þrengslum og á Mosfellsheiði. Nú snjóar á Suðurlandi og þar er snjóþekja á flestum leiðum allt austur að Þjórsá.

Á Vesturlandi er hálka eða hálkublettir á vegum en þæfingsfærð og skafrenningur á Bröttubrekku og snjóþekja á Holtavörðuheiði. Ófært er á Fróðárheiði. Það er hvasst undir Hafnarfjalli og á norðanverðu Snæfellsnesi.

Hálka, hálkublettir eða snjóþekja eru á vegum á Vestfjörðum  og víða skafrenningur á fjallvegum. Þungfært er eins og er á Steingrímsfjarðarheiði og á Klettshálsi.

Það er hálka, hálkublettir eða snjóþekja á vegum á Norðurlandi vestra en á Norðausturlandi er autt á köflum eða hálkublettir. Hálka og skafrenningur er á Hólasandi og Hófaskarði.

Á Austurlandi er hálka eða hálkublettir á flestum leiðum. Hálkublettir eða snjóþekja er á köflum með suðausturströndinni.


Borgarfjarðarbrú

Vegna vinnu við Borgarfjarðarbrú er önnur akreinin lokuð og umferð er stýrt með ljósum. Áætluð verklok eru 15. júní 2017.