Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 23.3.2017

23.3.2017 13:07


Ábendingar frá veðurfræðingi

Búast má við snörpum vindhviðum (allt að 30 m/s) við fjöll SV-til s.s. á Kjalarnesi og undir Hafnarfjalli fram eftir degi í dag. Einnig má búast við stormi eða roki og vindhviðum allt að 35 m/s á norðanverðu Snæfellsnesi og víðar á NV-verðu landinu fram eftir degi.
Í kvöld snýst í hvassa suðvestanátt með éljum og takmörkuðu skyggni til fjalla á vestanverðu landinu.

Færð og aðstæður

Hálkublettir eru á Mosfellsheiði en vegir á Suðurlandi eru víða að verða auðir en þó er enn krapi eða hálkublettir á nokkrum útvegum. Þungfært er á Krísuvíkurvegi.

Á Vesturlandi er hálka eða hálkublettir á vegum en snjóþekja og skafrenningur á Bröttubrekku. Hvasst er undir Hafnarfjalli, á Holtavörðuheiði og á norðanverðu Snæfellsnesi.

Hálka, hálkublettir eða snjóþekja eru á vegum á Vestfjörðum.

Það er hálka eða  hálkublettir á vegum á Norðurlandi og víða skafrenningur. Snjóþekja og skafrenningur er á Vatnsskarði.  Vegna hlýnandi veðurs er aukin snjóflóðahætta á Siglufjarðarvegi og í Ólafsfjarðarmúla.

Á Austurlandi er hálka eða hálkublettir á flestum leiðum og eins er hálka, hálkublettir eða snjóþekja með suðausturströndinni og víða éljagangur.

Þungatakmarkanir

Vegna hættu á slitlagsskemmdum verður viðauki 1 felldur úr gildi og ásþungi takmarkaður við 10 tonn frá kl. 12:00 föstudaginn 24. mars, á eftirtöldum vegum: Vestfjarðavegi 60 frá Hringvegi 1 við Dalsmynni, Barðastrandarvegi 62, Bíldudalsvegi 63, Djúpvegi 61 að Flugvallarvegi Skutulsfirði, Laxárdalsheiði 59, Innstrandavegi 68 frá Borðeyri og á Drangsnesvegi 643.




Borgarfjarðarbrú

Vegna vinnu við Borgarfjarðarbrú er önnur akreinin lokuð og umferð er stýrt með ljósum. Áætluð verklok eru 15. júní 2017.