Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 23.3.2017

23.3.2017 10:11

Holtavörðuheiði lokuð

Vegurinn um Holtavörðuheiði er lokaður tímabundið vegna umferðaróhapps.

Ábendingar frá veðurfræðingi

Búast má við snörpum vindhviðum (allt að 30 m/s) við fjöll SV-til s.s. á Kjalarnesi og undir Hafnarfjalli fram eftir degi í dag. Einnig má búast við stormi eða roki og vindhviðum allt að 35 m/s á norðanverðu Snæfellsnesi og víðar á NV-verðu landinu fram eftir degi.
Í kvöld snýst í hvassa suðvestanátt með éljum og takmörkuðu skyggni til fjalla á vestanverðu landinu.

Færð og aðstæður

Það er mjög hvasst á Sandskeiði og þar eru hálkublettir. Snjóþekja og skafrenningur er á Hellisheiði og á Mosfellsheiði. Krapi er nú á flestum leiðum á Suðurlandi, allt austur að Hvolsvelli en unnið að hreinsun. Þungfært er á Krísuvíkurvegi. Hálka og snjókoma er á Reynisfjalli.

Á Vesturlandi er hálka eða hálkublettir á vegum en snjóþekja og skafrenningur á Bröttubrekku. Holtavörðuheiði er lokuð tímabundið en þar er nú slæmt veður. Hvasst á norðanverðu Snæfellsnesi. Ófært er á Fróðárheiði.

Hálka, hálkublettir eða snjóþekja eru á vegum á Vestfjörðum  og víða skafrenningur á fjallvegum.

Það er hálka, hálkublettir eða snjóþekja á vegum á Norðurlandi vestra en á Norðausturlandi er autt á köflum eða hálkublettir. Skafrenningur er á  Öxnadalsheiði, Víkurskarði og á vegum í kringum Mývatn.

Á Austurlandi er hálka eða hálkublettir á flestum leiðum. Hálka, hálkublettir eða snjóþekja eru með suðausturströndinni og víða éljagangur.


Borgarfjarðarbrú

Vegna vinnu við Borgarfjarðarbrú er önnur akreinin lokuð og umferð er stýrt með ljósum. Áætluð verklok eru 15. júní 2017.