Umferðarþjónusta - Tilkynning - 23.3.2017
Holtavörðuheiði lokuð
Vegurinn um Holtavörðuheiði er lokaður tímabundið vegna umferðaróhapps.
Ábendingar frá veðurfræðingi
Búast má við snörpum vindhviðum (allt að 30 m/s) við fjöll SV-til s.s. á Kjalarnesi og undir Hafnarfjalli fram eftir degi í dag. Einnig má búast við stormi eða roki og vindhviðum allt að 35 m/s á norðanverðu Snæfellsnesi og víðar á NV-verðu landinu fram eftir degi.
Í kvöld snýst í hvassa suðvestanátt með éljum og takmörkuðu skyggni til fjalla á vestanverðu landinu.
Færð og aðstæður
Það er mjög hvasst á Sandskeiði og þar eru hálkublettir. Snjóþekja og skafrenningur er á Hellisheiði og á Mosfellsheiði. Snjóþekja er einnig á flestum leiðum á Suðurlandi, allt austur að Hvolsvelli. Þungfært er á Krísuvíkurvegi. Hálka og snjókoma er á Reynisfjalli.
Á Vesturlandi er hálka eða hálkublettir á vegum en snjóþekja og skafrenningur á Bröttubrekku. Holtavörðuheiði er lokuð tímabundið en þar er nú slæmt veður. Hvasst á norðanverðu Snæfellsnesi. Ófært er á Fróðárheiði.
Hálka, hálkublettir eða snjóþekja eru á vegum á Vestfjörðum og víða skafrenningur á fjallvegum.
Á Austurlandi er hálka eða hálkublettir á flestum leiðum. Hálkublettir eða snjóþekja er með suðausturströndinni.
Borgarfjarðarbrú
Vegna vinnu við Borgarfjarðarbrú er önnur akreinin lokuð og umferð er stýrt með ljósum. Áætluð verklok eru 15. júní 2017.