Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 23.3.2017

23.3.2017 9:35

Færð og aðstæður

Það er mjög hvasst á Sandskeiði og þar eru hálkublettir. Snjóþekja og skafrenningur er á Hellisheiði og á Mosfellsheiði. Snjóþekja er einnig á flestum leiðum á Suðurlandi, allt austur að Hvolsvelli. Þungfært er á Krísuvíkurvegi. Hálka og snjókoma er á Reynisfjalli.

Á Vesturlandi er hálka eða hálkublettir á vegum en snjóþekja og skafrenningur á Bröttubrekku. Nú er stórhríð, mjög hvasst og slæmt skyggni á Holtavörðuheiði en einnig er hvasst á norðanverðu Snæfellsnesi. Ófært er á Fróðárheiði.

Hálka, hálkublettir eða snjóþekja eru á vegum á Vestfjörðum  og víða skafrenningur á fjallvegum.

Það er hálka, hálkublettir eða snjóþekja á vegum á Norðurlandi vestra en á Norðausturlandi er autt á köflum eða hálkublettir. Skafrenningur er á  Öxnadalsheiði, Víkurskarði og á vegum í kringum Mývatn.

Á Austurlandi er hálka eða hálkublettir á flestum leiðum. Hálkublettir eða snjóþekja er með suðausturströndinni.


Borgarfjarðarbrú

Vegna vinnu við Borgarfjarðarbrú er önnur akreinin lokuð og umferð er stýrt með ljósum. Áætluð verklok eru 15. júní 2017.