Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 23.3.2017

23.3.2017 6:53

Færð og aðstæður

Það eru hálkublettir á Reykjanesbraut og Höfuðborgarsvæðinu. Hálka er á Sandskeiði en snjóþekja og skafrenningur á Hellisheiði,  í Þrengslum og á Mosfellsheiði. Nú snjóar á Suðurlandi og þar er snjóþekja á flestum leiðum allt austur að Þjórsá.

Á Vesturlandi er hálka eða hálkublettir á vegum en þæfingsfærð og skafrenningur á Bröttubrekku og snjóþekja á Holtavörðuheiði. Ófært er á Fróðárheiði.

Hálka, hálkublettir eða snjóþekja eru á vegum á Vestfjörðum  og víða skafrenningur á fjallvegum. Þungfært er eins og er á Steingrímsfjarðarheiði og þæfingsfærð á Klettshálsi. Ófært er á Kleifaheiði.

Það er hálka eða hálkublettir á vegum á Norðurlandi vestra en á Norðausturlandi er autt á köflum eða hálkublettir. Hálka og skafrenningur er á Hófaskarði.

Á Austurlandi er hálka eða hálkublettir á flestum leiðum. Greiðfært er að mestu með suðausturströndinni en þó eru hálkublettir eða snjóþekja á vegum fyrir vestan Öræfasveit. 


Borgarfjarðarbrú

Vegna vinnu við Borgarfjarðarbrú er önnur akreinin lokuð og umferð er stýrt með ljósum. Áætluð verklok eru 15. júní 2017.