Tilkynning um færð og ástand
Umferðarþjónusta - Tilkynning - 2.3.2018
Færð og aðstæður
Á Suður- og Vesturlandi eru vegir að mestu greiðfærir en eitthvað er um hálkubletti. Snarpar vindhviður eru við Hafursfell á sunnanverðu Snæfellsnesi.Á Vestfjörðum eru vegir greiðfærir á láglendi en hálkublettir á fjallvegum. Snjóþekja er á Þröskuldum. Hálkublettir eru einnig á Innstrandavegi.
Á Norðurlandi vestra eru vegir að mestu greiðfærir en hálkublettir eru á Þverárfjalli og á Vatnsskarði og eitthvað er um hálkubletti í Skagafirði.
Á Norðausturlandi er hálka, hálkublettir og éljagangur.
Á Austurlandi er víða hálka eða snjóþekja og eitthvað um skafrenning.
Á Suðausturlandi eru vegir að mestu greiðfærir en hálka og skafrenningur er við Kvísker.
Skemmdir á slitlagi
Eftir veðurfarið að undanförnu hefur mikið borið á slitlagsskemmdum á vegum. Á þessum árstíma er aðeins hægt að bregðast við með ófullkomnum bráðabirgðaviðgerðum og því eru vegfarendur beðnir að sýna sérstaka aðgát við þessar aðstæður.
Þungatakmarkanir
Vegna hættu á slitlagsskemmdum hefur viðauki 1 verið felldur úr gildi og ásþungi miðaður við 10 tonn í sumum landshlutum. Á fáeinum leiðum er ásþungi takmarkaður við 7 tonn. Sjá nánar hér
Þingskálavegur
Þingskálavegur (vegur 268) er ófær vegna vatnaskemmda ofan við bæinn Hóla.
Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi
Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.