Tilkynning um færð og ástand
Umferðarþjónusta - Tilkynning - 22.9.2018
Færð
Hálka eða hálkublettir eru á fjallvegum á Norðaustur- og Austurlandi. Þungfært er á Hellisheiði eystri en þæfingsfærð á Mjóafjarðarheiði.
Hálendi
Víða á hálendinu er færð farin að spillast og vegfarendur beðnir að kanna aðstæður áður en farið er inn á hálendisvegi.
Framkvæmdir við Esjumela
Á næstu vikum verður unnið að byggingu hringtorgs og undirganga fyrir gangandi auk vega- og stígagerðar á Esjumelum við Norðurgrafarveg og verður umferð um Vesturlandsveg beint um hjáleið framhjá vinnusvæðinu. Hámarkshraði um framkvæmdasvæðið er 50 km/klst og eru ökumenn hvattir til að virða merkingar á vinnusvæðinu.