Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 22.7.2017

22.7.2017 11:20

Veðurviðvörun

Fyrir hádegi í dag hvessir af suðaustri og má búast við allhvössum vindi á norðanverðu Snæfellsnesi í dag og fram yfir hádegi á morgun. Vindhviður gætu náð 25 til 35 m/s. Einnig getur orðið byljótt undir Hafnarfjalli og á Kjalarnesi, einkum síðdegis í dag. 

Viðhaldsframkvæmdir

Vegagerðin varar við töluverðum viðhaldsframkvæmdum á Hringvegi frá Holtavörðuheiði að Blönduósi næstu daga og fram yfir helgi. Vegfarendur geta búist við umferðarstýringu við framkvæmdasvæðið með 10-15 mínútna bið í senn. 

Einnig verður unnið við blettanir á norðanverðu Snæfellsnesi.

Vegfarendur eru beðnir að aka varlega um nýlögð svæði, virða stöðvunarskyldu og hraðatakmarkanir á vinnusvæðum til að lágmarka umferðartafir og tjón vegna steinkasts.

Framkvæmdir á Höfuðborgarsvæðinu

Laugardaginn 22. júlí er stefnt að því að fræsa og malbika báðar akreinar á Miklubraut til vesturs, frá Kringlumýrarbraut að Lönguhlíð. Annari akreininni verður lokað í einu. Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli kl. 07:00 til kl. 18:00.

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin sem eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akbrautum.

Framkvæmdir á Suðurlandsvegi

Sunnudagskvöld 23. júlí og fram á mánudagskvöld er stefnt að því að malbika báðar akreinar niður Kambana , frá bílastæði á Kambabrún og 2 km niður brekkuna. Lokað verður fyrir umferð til austurs um Suðurlandsveg og umferð beint um Þrengslaveg. Umferð sem á erindi í Hellisheiðarvirkjun verður hleypt framhjá. Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir frá kl. 21:00 til kl. 21:00 kvöldið eftir.

Gera má ráð fyrir áframhaldandi malbikunarframkvæmdum á Suðurlandsvegi frá Kömbum og inn á Selfoss frá mánudagskvöldi 24. júlí til miðvikudagskvöldsins 26. júlí. M.a. er stefnt á að malbika hringtorg við Hveragerði aðfaranótt þriðjudags og hringtorg við Ölfusárbrú aðfaranótt miðvikudags en þá verður Suðurlandsvegur lokaður við Ölfusárbrú.

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin sem eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akbrautum.

Framkvæmdir á Reykjanesbraut og Krýsuvíkurvegi 

Unnið er við mislæg vegamót Reykjanesbrautar og Krýsuvíkurvegar í Hafnarfirði. Umferð fer á kafla um hjáleið á Reykjanesbraut sunnan Hafnarfjarðar. Leyfður umferðarhraði þar er 50 km/klst. Vegna sprenginga þarf að stöðva umferð á Reykjanesbraut í skamman tíma, allt að þrisvar sinnum á dag.

Einnig er verið að byggja nýtt hringtorg á  Krýsuvíkurvegi (42), en um er að ræða gatnatengingar að Dofrahellu og Ásvallabraut (Klukkutorg).  Í upphafi verður unnið meðfram Krýsuvíkurvegi (42) og síðar í sumar verður umferð færð yfir á hjáleið við hlið framkvæmdasvæðis. Gert er ráð fyrir að hringtorgið verði tekið í notkun 1. september 2017.

Þar að auki er unnið að gerð tveggja hringtorga á Reykjanesbraut (41), annars vegar við Aðalgötu og hins vegar við Þjóðbraut. Ökuhraði er lækkaður á framkvæmdasvæðinu og búast má við einhverjum töfum. Verkinu á að ljúka í september.

Framkvæmdir á Hafnarfjarðarvegi

Unnið er að gerð hljóðmanar á um 250m kafla við Arnarnes í Garðabæ. Frá 18. júlí til 21. júlí milli 07:30 og 16:00 þarf að loka annarri akrein til suðurs þar sem keyrt er upp úr Kópavoginum að Arnarnesbrú.

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu við akbrautir.

Framkvæmdir á Hringvegi

Verið er að vinna við brú á Jökulsá í Lóni og er hámarkshraði dreginn niður í 50 í gegnum framkvæmdasvæðið. 

Vaðlaheiðarvegur

Vaðlaheiðarvegur 832 hefur verið opnaður að hluta, þ.e. 12 km kafli upp úr Eyjafirði en vegna framkvæmda við Vaðlaheiðargöng í Fnjóskadal er ekki hægt að láta umferð fara um vinnusvæðið við Skóga, því er veginum lokað við Ytra Nesgil. Öll umferð upp úr Fnjóskadal er því bönnuð.

Hálendiskort

Sjá hér