Tilkynning um færð og ástand
Umferðarþjónusta - Tilkynning - 22.3.2017
Færð og aðstæður
Vegir á Suðurlandi eru mikið að verða auðir en þó eru enn hálkublettir sums staðar á útvegum.
Eins er lítið orðið eftir af hálku á Vesturlandi, þar eru víðast aðeins hálkublettir eða jafnvel alveg autt. Nokkur hálka er á vegum á Vestfjörðum en snjóþekja á Ströndum norðan Steingrímsfjarðar.
Það er hált á köflum á Austurlandi en með ströndinni suður um er nú orðið greiðfært.
Héðinsfjarðargöng
Enn er verið að vinna í Héðinsfjarðargöngum og má því búast við minni háttar töfum þar til kl. fjögur í dag.Borgarfjarðarbrú
Vegna vinnu við Borgarfjarðarbrú er önnur akreinin lokuð og umferð er stýrt með ljósum. Áætluð verklok eru 15. júní 2017.