Tilkynning um færð og ástand
Umferðarþjónusta - Tilkynning - 22.3.2017
Færð og aðstæður
Það er hálka á Hellisheiði og í Þrengslum en hálkublettir, hálka eða snjóþekja víða á Suðurlandi, þó síst á Hringveginum.
Eins er á köflum hálka og snjóþekja á vegum við Faxaflóa en meira er autt við Breiðafjörð. Nokkur hálka er á vegum á Vestfjörðum en snjóþekja á Ströndum norðan Steingrímsfjarðar.
Hálka eða hálkublettir eru á vegum á Austurlandi en með ströndinni er að mestu greiðfært frá Reyðarfirði vestur í Öræfi. Þar fyrir vestan er á köflum nokkur hálka.
Héðinsfjarðargöng
Enn er verið að vinna í Héðinsfjarðargöngum og má því búast við minni háttar töfum þar til kl. fjögur í dag.Borgarfjarðarbrú
Vegna vinnu við Borgarfjarðarbrú er önnur akreinin lokuð og umferð er stýrt með ljósum. Áætluð verklok eru 15. júní 2017.