Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 22.3.2017

22.3.2017 10:47

Færð og aðstæður

Það er hálka á Hellisheiði og í Þrengslum en hálkublettir, hálka eða snjóþekja á velflestum vegum á Suðurlandi. 

Eins er allvíða hálka og snjóþekja á vegum við Faxaflóa en meira er autt við Breiðafjörð. Nokkur hálka er á vegum á Vestfjörðum, þó snjóþekja á Steingrímsfjarðarheiði og  á Ströndum norðan Steingrímsfjarðar.

Vegir eru mikið auðir við innanverðan Húnaflóa en í Austur-Húnavatnssýslu og austur í Eyjafjörð er víðast hálka eða snjóþekja. Í Þingeyjarsýslum eru víðast aðeins hálkublettir.

Hálka eða hálkublettir eru á vegum á Austurlandi en með ströndinni er að mestu greiðfært frá Reyðarfirði vestur í Öræfi. Þar fyrir vestan er á köflum nokkur hálka eða snjóþekja.

Héðinsfjarðargöng

Enn er verið að vinna í Héðinsfjarðargöngum og má því búast við minni háttar töfum þar til kl. fjögur í dag.

Borgarfjarðarbrú

Vegna vinnu við Borgarfjarðarbrú er önnur akreinin lokuð og umferð er stýrt með ljósum. Áætluð verklok eru 15. júní 2017.