Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 22.3.2017

22.3.2017 8:48

Færð og aðstæður

Það er hálka á Hellisheiði og í Þrengslum en hálka eða snjóþekja er á nánast öllum vegum á Suðurlandi. 

Eins er hálka og snjóþekja á vegum við Faxaflóa og á Snæfellsnesi en meira er autt í Dölunum.

Hálka og snjóþekja er á vegum á Vestfjörðum, einkum á norðursvæðinu.

Vegir eru mikið auðir á innanverðum Ströndum og í Vestur-Húnavatnssýslu en á Norðurlandi hefur víðast hvar snjóað og þar er ýmist snjóþekja eða hálka.

Hálka eða hálkublettir eru á vegum á Austurlandi en með ströndinni er að mestu greiðfært frá Reyðarfirði að Höfn. Þar fyrir vestan er á köflum nokkur hálka eða snjóþekja.

Borgarfjarðarbrú

Vegna vinnu við Borgarfjarðarbrú er önnur akreinin lokuð og umferð er stýrt með ljósum. Áætluð verklok eru 15. júní 2017.