Tilkynning um færð og ástand
Umferðarþjónusta - Tilkynning - 22.3.2017
Ábendingar frá veðurfræðingi
Í nótt hvessir af suðri með rigningu eða slyddu SV-til en snjókomu til fjalla, og eins á Vestur og Norðvesturlandi. Búast má við skafrenningi og lélegu skyggni sums staðar á fjallvegum snemma í fyrramálið.
Færð og aðstæður
Vegir á Suðurlandi eru að mestu auðir en þó eru hálkublettir sums staðar á útvegum.
Eins er lítið orðið eftir af hálku á Vesturlandi, þar eru víðast aðeins hálkublettir eða jafnvel alveg autt. Nokkur hálka eða hálkublettir eru á vegum á Vestfjörðum en snjóþekja á Ströndum norðan Steingrímsfjarðar.
Það er hált á köflum á Austurlandi en með ströndinni suður um er nú orðið greiðfært suður að Kirkjubæjarklaustri en þar taka við hálkublettir.
Borgarfjarðarbrú
Vegna vinnu við Borgarfjarðarbrú er önnur akreinin lokuð og umferð er stýrt með ljósum. Áætluð verklok eru 15. júní 2017.