Tilkynning um færð og ástand
Umferðarþjónusta - Tilkynning - 22.3.2017
Færð og aðstæður
Það er snjóþekja á Hellisheiði og hálka í Þrengslum en það er snjóþekja eða hálka á nánast öllum vegum á Suðurlandi.
Eins er snjóþekja eða hálka á vegum við Faxaflóa og á Snæfellsnesi en meira er autt í Dölunum.
Vegir eru mikið auðir í Vestur-Húnavatnssýslu en á Norðurlandi hefur þó víðast hvar snjóað og þar er ýmist snjóþekja eða hálka.
Hálka eða hálkublettir eru á vegum á Austurlandi en með ströndinni er að mestu greiðfært frá Reyðarfirði að Höfn. Þar fyrir vestan er éljagangur og nokkur hálka eða snjóþekja.
Borgarfjarðarbrú
Vegna vinnu við Borgarfjarðarbrú er önnur akreinin lokuð og umferð er stýrt með ljósum. Áætluð verklok eru 15. júní 2017.