Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 22.3.2017

22.3.2017 6:51

Færð og aðstæður

Það er snjóþekja bæði á Hellisheiði og í Þrengslum en snjóþekja er nánast á öllum vegum á Suðurlandi. 

Eins er snjóþekja eða nokkur hálka á vegum á Vesturlandi, raunar þæfingur á Fróðárheiði.

Það hefur snjóað í flestum landshlutum en verið er að hreinsa vegi og kanna færð. Nánari fréttir verða komnar fyrir klukkan hálf-átta.

Borgarfjarðarbrú

Vegna vinnu við Borgarfjarðarbrú er önnur akreinin lokuð og umferð er stýrt með ljósum. Áætluð verklok eru 15. júní 2017.