Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning

8.3.2017 11:47

Færð og aðstæður

Greiðfært er að mestur leiti á Suðurlandi en hálka eða hálkublettir á útvegum.

Það er hálka eða hálkublettir á Vesturlandi þó aðalega á fjallvegum. 

Á Vestfjörðum er hálka eða hálkublettir en hálka og éljagangur á Steingrímsfjarðarheiði og snjóþekja á Þröskuldum.

Hálka eða hálkublettir eru nokkuð víða á Norðvesturlandi en á Norðaustanlands er greiðfært að mestu en eitthvað um hálku eða hálkubletti á fjallvegum. 

Það er að mestu greiðfært á láglendi á Austurlandi en hálka eða hálkublettir á fjallvegum. Greiðfært er með suðausturströndinni að Jökulsárlóni en hálkublettir eftir það.

Þungatakmarkanir

Vegna hættu á slitlagsskemmdum hefur viðauki 1 verið felldur úr gildi og ásþungi takmarkaður við 10 tonn á Snæfellsnesvegi (54) frá Borgarnesi og öllum vegum á Snæfellsnesi.

Borgarfjarðarbrú

Vegna vinnu við Borgarfjarðarbrú er önnur akreinin lokuð og umferð stýrt með ljósum. Áætluð verklok eru 15. júní 2017.