Umferðarþjónusta - Tilkynning - 21.9.2018
Færð
Snjóþekja og éljagangur er á Holtavörðuheiði. Hálkublettir eru á nokkrum fjallvegum á Vestfjörðum og á Vesturlandi einnig á nokkrum láglendisvegum. Hálka á Steingrímsfjarðarheiði. Ófært er á Strandavegi.
Hálkublettir eru nokkuð víða á Norðausturlandi einnig á Vatnsskarði. Krapi er á Þverárfjalli, Siglufjarðarvegi og Hólasandi. Búið er að loka veginum um Lágheiði.
Krapi er á Mývatnsöræfum, Vopnafjarðarheiði og Hárekstaðaleið en hálka á Möðrudalsöræfum. Þæfingsfærð og snjókoma er á Fjarðarheiði en þungfært er Mjóafjarðarheiði. Snjóþekja og skafrenningur er á Öxi.
Mjög hvasst er á Norðausturlandi.
Hálendi
Búast má við að færð gæti farið að þyngjast á hálendis vegum og þá sérstaklega á norðanverðu landinu.Framkvæmdir við Esjumela
Á næstu vikum verður unnið að byggingu hringtorgs og undirganga fyrir gangandi auk vega- og stígagerðar á Esjumelum við Norðurgrafarveg og verður umferð um Vesturlandsveg beint um hjáleið framhjá vinnusvæðinu. Hámarkshraði um framkvæmdasvæðið er 50 km/klst og eru ökumenn hvattir til að virða merkingar á vinnusvæðinu.