Umferðarþjónusta - Tilkynning - 21.9.2018
Færð
Hálkublettir eru á nokkrum fjallvegum á Vestfjörðum og á Vesturlandi. Krapi og éljagangur er á Þverárfjalli. Hálkublettir eru á Strandavegi en þungfært í Reykjafirði.
Hálkublettir eru á Mývatnsheiði. Búið er að loka veginum um Lágheiði.
Krapi er á Mývatnsöræfum en hálka á Möðrudalsöræfum en hálkublettir á Hárekstaðaleið. Þungfært er Mjóafjarðarheiði. Snjóþekja og skafrenningur er á Öxi. Ófært er á Hellisheiði eystri.
Hálendi
Búast má við að færð gæti farið að þyngjast á hálendis vegum og þá sérstaklega á norðanverðu landinu.Framkvæmdir við Esjumela
Á næstu vikum verður unnið að byggingu hringtorgs og undirganga fyrir gangandi auk vega- og stígagerðar á Esjumelum við Norðurgrafarveg og verður umferð um Vesturlandsveg beint um hjáleið framhjá vinnusvæðinu. Hámarkshraði um framkvæmdasvæðið er 50 km/klst og eru ökumenn hvattir til að virða merkingar á vinnusvæðinu.