Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 21.6.2017

21.6.2017 15:29

Hjólreiðakeppnin WOW Cyclothon

Nú stendur yfir hjólreiðakeppnin WOW Cyclothon þar sem hjólað er réttsælis hringinn í kringum landið. Hjólað er að mestu á Hringveginum en þó er farið um Hvalfjörð og á Austurlandi um Öxi en á Suðurlandi verður farið frá Selfossi niður í Ölfus og svo um Þrengslin. - Mikilvægt er að vegfarendur sýni sérstaka aðgát og tillitsemi meðan svo margt hjólafólk er á ferðinni.

Í dag, 21. júní, er gert ráð fyrir umferðartöfum í Hvalfirði vegna keppninnar frá kl. 18:00 til kl. 22:00.

Malbikun á Reykjanesbraut

Í kvöld og nótt (21.-22. júní) er stefnt að því að malbika hægri akrein og öxl á Reykjanesbraut við brú hjá Vatnsleysustrandarvegi, í átt að Keflavík. - Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir frá kl. 17:00 í dag til kl. 05:00 í fyrramálið.

Á morgun, fimmtudaginn 22. júní er stefnt að því að fræsa og malbika hægri öxl á Reykjanesbraut hjá Kúagerði, í átt að Keflavík. Akreininni verður lokað á meðan, umferðarhraði lækkaður framhjá vinnusvæðinu og má búast við lítilsháttar umferðartöfum frá kl. 8:00 til kl. 18:00.

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin sem eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.

Framkvæmdir á Reykjanesbraut og Krýsuvíkurvegi

Unnið er við mislæg vegamót Reykjanesbrautar og Krýsuvíkurvegar í Hafnarfirði. Umferð fer á kafla um hjáleið á Reykjanesbraut sunnan Hafnarfjarðar. Leyfður umferðarhraði þar er 50 km/klst. Vegna vinnu við sprengingar á framkvæmdasvæðinu þarf að stöðva umferð á Reykjanesbraut í skamman tíma, allt að þrisvar sinnum á dag.

Krýsuvíkurvegi hefur verið lokað tímabundið, milli Rauðhellu og hringtorgs við Hraunhellu / Hringhellu. Merkt hjáleið er um Rauðhellu og Hringhellu á meðan lokun Krýsuvíkurvegar varir (u.þ.b. til 24 júní).

Einnig er verið að byggja nýtt hringtorg á  Krýsuvíkurvegi (42), en um er að ræða gatnatengingar að Dofrahellu og Ásvallabraut (Klukkutorg).  Í upphafi verður unnið meðfram Krýsuvíkurvegi (42) og síðar í sumar verður umferð færð yfir á hjáleið við hlið framkvæmdasvæðis. Gert er ráð fyrir að hringtorgið verði tekið í notkun 1. september 2017. - Vegfarendur eru beðnir að sýna aðgát og virða umferðarmerkingar við vinnusvæðin.

Umferðartafir á Hringvegi

Vegna endurbóta á Hringvegi í Reykjadal í Suður-Þingeyjarsýslu er umferðarhraði takmarkaður við 50 km/klst á framkvæmdasvæðinu fram í miðjan júlí. Þrengt er að umferð og má búast við lítilsháttar umferðartöfum á meðan framkvæmdir standa yfir. - Vegfarendur eru beðnir um að virða hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðið þar sem menn og tæki eru við vinnu á og við akbrautina.

Búast má við umtalsverðum umferðartöfum á brúnni á Jökulsá í Lóni, um 20-30 mín í senn, milli kl 07.00 – 19.00  fram til 15. júlí vegna framkvæmda.