Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 21.4.2017

21.4.2017 9:39

Færð og aðstæður

Það er hálka í Þrengslum en hálkublettir á Hellisheiði, líkt og á flestum vegum  á Suðurlandi.

Á Vesturlandi er hálka á Holtavörðuheiði og hálkublettir á nokkrum köflum.

Hálkublettir eru víða á heiðum og hálsum á Vestfjörðum en hálka á Klettshálsi og snjóþekja á Steingrímsfjarðarheiði og á veginum norður í Árneshrepp. Ófært er á Hrafnseyrarheiði og Dynjandisheiði og vegna snjóflóðahættu verður ekki farið í mokstur í dag. 

Hálka eða hálkublettir eru mjög víða á Norðurlandi og snjóþekja á Siglufjarðarvegi og Raufarhafnarvegi. Það er hálka á Mývatns- og Möðrudalsöræfum og skafrenningur.

Það er víða greiðfært á Austurlandi en þó eru hálkublettir á flestum fjallvegum og hálka og skafrenningur á Fjarðarheiði.

Greiðfært er með suðausturströndinni.

Umferðartafir á Reykjanesbraut sunnan Hafnarfjarðar

Vinna er hafin við gerð mislægra vegamóta Reykjanesbrautar í Hafnarfirði og Krýsuvíkurvegar.

Vegna framkvæmdanna þarf að takamarka umferðarhraða á framkvæmdasvæðinu og færa hann niður í 50 km/klst. Vegna sprenginga þarf að stöðva umferð um vinnusvæðið á Reykjanesbraut í skamman tíma, allt að þrisvar sinnum á dag. Umferð verður stöðvuð í 2-3 mínútur í senn af þessum sökum.

Vegfarendur eru hvattir til að sýna aðgát og virða umferðarmerkingar við vinnusvæðið.

Þungatakmarkanir

Vegna hættu á slitlagsskemmdum eru þungatakmarkanir á köflum á Vesturlandi og Vestfjörðum. Víðast er um að ræða 10 tonna ásþungatakmarkanir en þó er ásþungi takmarkaður við 7 tonn á Bíldudalsvegi (63) frá Bíldudalsflugvelli að Vestfjarðavegi (60) við Helluskarð og á Vestfjarðavegi (60) frá Flókalundi að Þingeyri.

Borgarfjarðarbrú

Hlé var gert á vinnu við Borgarfjarðarbrú um páskana og verða báðar akreinar opnar til 23. apríl. Athugið að framkvæmdum er ekki lokið og akreinar eru ekki í fullri vegbreidd. Umferðarstýring er á gulu blikki og hraði takmarkaður við 30 km/klst.  Vinna hefst að nýju mánudaginn 24. apríl.