Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 21.4.2017

21.4.2017 12:39

Færð og aðstæður

Það er greiðfært á Suðurlandi en á Vesturlandi eru hálkublettir á nokkrum fjallvegum.

Á Vestfjörðum eru víða hálkublettir á heiðum og hálsum.  Snjóþekja  er á Steingrímsfjarðarheiði og á veginum norður í Árneshrepp. Ófært er á Hrafnseyrarheiði og Dynjandisheiði en vegna snjóflóðahættu verður ekki mokað í dag. 

Hálkublettir eru nokkuð víða á Norðurlandi vestra, einkum á fjallvegum og útvegum. Á Norðausturlandi er greiðfært í Eyjafirði en þar fyrir austan er víða hálka eða hálkublettir.

Það er að mestu greiðfært á Austurlandi en þó eru hálkublettir á Oddskarði og hálka á Fjarðarheiði. Einnig er greiðfært með suðausturströndinni.

Umferðartafir á Reykjanesbraut sunnan Hafnarfjarðar

Vinna er hafin við gerð mislægra vegamóta Reykjanesbrautar í Hafnarfirði og Krýsuvíkurvegar.

Vegna framkvæmdanna þarf að takamarka umferðarhraða á framkvæmdasvæðinu og færa hann niður í 50 km/klst. Vegna sprenginga þarf að stöðva umferð um vinnusvæðið á Reykjanesbraut í skamman tíma, allt að þrisvar sinnum á dag. Umferð verður stöðvuð í 2-3 mínútur í senn af þessum sökum.

Vegfarendur eru hvattir til að sýna aðgát og virða umferðarmerkingar við vinnusvæðið.

Þungatakmarkanir

Vegna hættu á slitlagsskemmdum eru þungatakmarkanir á köflum á Vesturlandi og Vestfjörðum. Víðast er um að ræða 10 tonna ásþungatakmarkanir en þó er ásþungi takmarkaður við 7 tonn á Bíldudalsvegi (63) frá Bíldudalsflugvelli að Vestfjarðavegi (60) við Helluskarð og á Vestfjarðavegi (60) frá Flókalundi að Þingeyri.

Borgarfjarðarbrú

Hlé var gert á vinnu við Borgarfjarðarbrú um páskana og verða báðar akreinar opnar til 23. apríl. Athugið að framkvæmdum er ekki lokið og akreinar eru ekki í fullri vegbreidd. Umferðarstýring er á gulu blikki og hraði takmarkaður við 30 km/klst.  Vinna hefst að nýju mánudaginn 24. apríl.