Umferðarþjónusta - Tilkynning - 21.3.2017
Umferðartafir
Búast má við smávegis umferðartöfum í Héðinsfjarðargöngum í dag 21. mars.
Færð og aðstæður
Það er víðast hvar greiðfært á Suðurlandi þótt sums staðar séu hálka eða hálkublettir.
Á Vesturlandi er víðast autt eða aðeins í hálkublettum.
Hálka eða hálkublettir eru víða á Vestfjörðum. Mikið er autt á láglendi með Breiðafirðinum.
Aðalleiðir á Norðurlandi vestra eru að mestu greiðfærar en hálkublettir á útvegum. Á Norðurlandi eystra er aftur á móti hálka eða hálkublettir og einhver éljagangur með ströndinni.
Á Austurlandi er víðast nokkur hálka eða snjóþekja.
Hálkublettir eða hálka er á köflum með suðausturströndinni.
Borgarfjarðarbrú
Vegna vinnu við Borgarfjarðarbrú er önnur akreinin lokuð og umferð er stýrt með ljósum. Áætluð verklok eru 15. júní 2017.