Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 20.9.2018

20.9.2018 16:29

Ábendingar frá veðurfræðingi 20. september kl. 16:15

Litur: Gulur

Úrkoma eykst norðaustanlands og einkum á norðanverðum Austfjörðum frá því seint í kvöld og til morguns.  Hríðarveður verður á Víkurskarði í kvöld og síðar á Möðrudalsöræfum og sér í lagi á Fjarðarheiði þar sem setur niður mikinn snjó með NV stormi.  Krapi á Fagradal og almennt séð líkur á krapa norðanlands í kvöld og nótt.  Sunnan undir Vatnajökli verða snarpi hnútar í fyrramálið frá um kl. 8 og fram yfir hádegi, 30-35 m/s.  Einkum frá Kvískerjum og austur fyrir Höfn

Færð

Hálka og éljagangur er á Þverárfjalli. Hálkublettir eru á Steingrímsfjarðarheiði, Bröttubrekku og Vatnsskarði eins eru hálkublettir á Möðrudalsöræfum. Krapi er á Hólasandi. Hálkublettir og éljagangur eru á Siglufjarðarvegi frá Ketilás í Dalvík.

Framkvæmdir

Fimmtudaginn 20. september er stefnt að því að malbika axlir á Reykjanesbraut, milli Straumsvíkur og Hvassahrauns. Þrengt verður að umferð og umferðarhraði tekinn niður framhjá vinnusvæðinu. Búast má við einhverjum umferðartöfum. Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli kl. 08:00 til kl. 22:00.

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin sem eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.

Hálendi

Búast má við að færð gæti farið að þyngjast á hálendis vegum og þá sérstaklega á norðanverðu landinu.

Hvalfjarðargöng verða lokuð fjórar nætur vegna viðhalds

Hvalfjarðargöng verða lokuð aðfaranótt föstudags vegna viðhalds og hreingerningar frá miðnætti til kl 06:00 að morgni


Framkvæmdir við Esjumela

Á næstu vikum verður unnið að byggingu hringtorgs og undirganga fyrir gangandi auk vega- og stígagerðar á Esjumelum við Norðurgrafarveg og verður umferð um Vesturlandsveg beint um hjáleið framhjá vinnusvæðinu. Hámarkshraði um framkvæmdasvæðið er 50 km/klst og eru ökumenn hvattir til að virða merkingar á vinnusvæðinu.

Þingvallavegur lokaður

Þingvallavegur (36) verður lokaður allri umferð milli þjónustumiðstöðvarinnar og eystri gatnamótanna við Vallaveg (361) fram í október. Hjáleið er um Vallaveg (361) Sjá nánar hér

Viðgerð á Miðfjarðarárbrú

Umfangsmikil viðgerð stendur yfir á brúnni yfir Miðfjarðará hjá Laugarbakka og því er umferð þar stýrt með ljósum. Brúin hefur reynst í verra ástandi en búist var við og nú er áætlað að vinnan standi fram í síðari hluta september.