Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 20.4.2017

20.4.2017 20:18

Færð og aðstæður

Vegir eru að mestu greiðfærir á Suður- og Suðvesturlandi en þó er éljagangur á Hellisheiði og Sandskeiði og komnir hálkublettir á veg.

Eins er víðast greiðfært á Vesturlandi nema hvað hálkublettir eru á Holtavörðuheiði.

Hálkublettir eru á flestum  fjallvegum á Vestfjörðum en hálka á Steingrímsfjarðarheiði.  Ófært er á Hrafnseyrarheiði og Dynjandisheiði en hætt var við mokstur í dag vegna snjóflóðahættu. Þungfært er norður í Árneshrepp á Ströndum.

Á Norðurlandi eru sumstaðar hálkublettir en éljagangur er á köflum við Eyjafjörð og í Þingeyjarsýslum. Hálka er á Hólaheiði, Raufarhafnarvegi, og á Hálsum og Hófaskarði.

Það er víða greiðfært á Austurlandi en þó vetrarfærð á fjallvegum. Hálka er á Möðrudalsöræfum og Fjarðarheiði en hálkublettir eru á Vatnsskarði eystra, Fagradal og Breiðdalsheiði. Þæfingsfærð er á Mjóafjarðarheiði.

Greiðfært er með suðausturströndinni.

Umferðartafir á Reykjanesbraut sunnan Hafnarfjarðar

Vinna er hafin við gerð mislægra vegamóta Reykjanesbrautar í Hafnarfirði og Krýsuvíkurvegar.

Vegna framkvæmdanna þarf að takamarka umferðarhraða á framkvæmdasvæðinu og færa hann niður í 50 km/klst. Vegna sprenginga þarf að stöðva umferð um vinnusvæðið á Reykjanesbraut í skamman tíma, allt að þrisvar sinnum á dag. Umferð verður stöðvuð í 2-3 mínútur í senn af þessum sökum.

Vegfarendur eru hvattir til að sýna aðgát og virða umferðarmerkingar við vinnusvæðið.

Þungatakmarkanir

Vegna hættu á slitlagsskemmdum eru þungatakmarkanir á köflum á Vesturlandi og Vestfjörðum. Víðast er um að ræða 10 tonna ásþungatakmarkanir en þó er ásþungi takmarkaður við 7 tonn á Bíldudalsvegi (63) frá Bíldudalsflugvelli að Vestfjarðavegi (60) við Helluskarð og á Vestfjarðavegi (60) frá Flókalundi að Þingeyri.

Borgarfjarðarbrú

Hlé var gert á vinnu við Borgarfjarðarbrú um páskana og verða báðar akreinar opnar til 23. apríl. Athugið að framkvæmdum er ekki lokið og akreinar eru ekki í fullri vegbreidd. Umferðarstýring er á gulu blikki og hraði takmarkaður við 30 km/klst.  Vinna hefst að nýju mánudaginn 24. apríl.