Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 20.4.2017

20.4.2017 17:28

Umferðartafir á Holtavörðuheiði

Búast má við umferðartöfum á Holtavörðuheiði vegna björgunar á flutningabíl sem fór útaf á heiðinni í gær.

Færð og aðstæður

Vegir á Suður- og Vesturlandi eru að mestu greiðfærir en þó eru hálkublettir á Holtavörðuheiði.

Hálkublettir eru á flestum  fjallvegum á Vestfjörðum en snjóþekja og skafrenningur á Steingrímsfjarðarheiði.  Ófært er á Hrafnseyrar- og Dynjandisheiði og hætt við mokstur í dag vegna snjóflóðahættu. Þungfært er norður í Árneshrepp á Ströndum.

Á Norðvesturlandi eru sumstaðar hálkublettir en snjóþekja yst á Siglufjarðarvegi.  Á Norðausturlandi eru hálkublettir á nokkrum fjallvegum og víða éljagangur.

Það er að mestu greiðfært á Austurlandi en hálkublettir í Oddskarði og á Breiðdalsheiði. Þæfingsfærð er á Mjóafjarðarheiði.

Greiðfært er með suðausturströndinni.

Umferðartafir á Reykjanesbraut sunnan Hafnarfjarðar

Vinna er hafin við gerð mislægra vegamóta Reykjanesbrautar í Hafnarfirði og Krýsuvíkurvegar.

Vegna framkvæmdanna þarf að takamarka umferðarhraða á framkvæmdasvæðinu og færa hann niður í 50 km/klst. Vegna sprenginga þarf að stöðva umferð um vinnusvæðið á Reykjanesbraut í skamman tíma, allt að þrisvar sinnum á dag. Umferð verður stöðvuð í 2-3 mínútur í senn af þessum sökum.

Vegfarendur eru hvattir til að sýna aðgát og virða umferðarmerkingar við vinnusvæðið.

Þungatakmarkanir

Vegna hættu á slitlagsskemmdum eru þungatakmarkanir á köflum á Vesturlandi og Vestfjörðum. Víðast er um að ræða 10 tonna ásþungatakmarkanir en þó er ásþungi takmarkaður við 7 tonn á Bíldudalsvegi (63) frá Bíldudalsflugvelli að Vestfjarðavegi (60) við Helluskarð og á Vestfjarðavegi (60) frá Flókalundi að Þingeyri.

Borgarfjarðarbrú

Hlé er gert á vinnu við Borgarfjarðarbrú um páskana og verða báðar akreinar opnar til 23. apríl. Athugið að framkvæmdum er ekki lokið og akreinar eru ekki í fullri vegbreidd. Umferðarstýring verður á gulu blikki og hraði takmarkaður við 30 km/klst.  Vinna hefst að nýju mánudaginn 24. apríl.