Umferðarþjónusta - Tilkynning - 20.1.2019
Færð og aðstæður
Höfuðborgarsvæðið: Hálka og hálkublettir eru á öllum stofnbrautum.Suðvesturland: Hálkublettir og éljagangur er á Reykjanesbraut og á Grindavíkurvegi, hálka og éljagangur er á Hellisheiði, Sandskeiði og á Vesturlandsvegi upp í Borgarfjörð annars er snjóþekja og éljagangur á öðrum leiðum.
Vesturland: Hálka og skafrenningur er á Holtavörðuheiði en þungfært og éljagangur á Bröttubrekku. Snjóþekja, hálka og éljagangur á öllum öðrum leiðum.
Vestfirðir: Snjóþekja og hálka og eitthvað um éljagang.
Norðurland: Vetrarfærð, snjóþekja, hálka og hálkublettir.
Norðausturland: Snjóþekja og hálka á Norðausturvegi (85) en snjóþekja og skafrenningur inn til landsins.
Austurland: Hálka er á Héraði en snjóþekja á Jökuldal. Flughálka er frá Streiti í Djúpavog annars eru hálkublettir með ströndinni.
Suðausturland: Hálka og hálkublettir.
Suðurland: Hálka, snjóþekja og éljagangur.
Framkvæmdir á Suðurlandsvegi
Vegna vinnu við að breikka Hringveginn er hámarkshraði takmarkaður við 70 km/klst á um 3 km kafla frá Hveragerði austur að Kotstrandarkirkju.
Á afmörkuðum svæðum við Varmá og austur fyrir gatnamót að
Ölfusborgum er hámarkshraði takmarkaður við 50 km/klst. Einnig á vestri enda Hvammsvegar við gatnamót Hringvegar. Framúrakstur er bannaður á framkvæmdasvæði. - Áætluð verklok eru 1. mars nk.
Fjaðrárgljúfur lokað
Vakin er athygli á að Umhverfisstofnun hefur lokað Fjaðrárgljúfri en lokunin verður endurskoðuð ekki síðar en 23. janúar. Þetta er gert bæði af öryggisástæðum og til að koma í veg fyrir frekari gróðurskemmdir á svæðinu. Bílastæðið er einnig lokað og ekki er hægt að leggja bílum í næsta nágrenni við svæðið.
Vaðlaheiðargöng
Leiðbeiningar um verð og greiðsluleiðir er að finna á vefnum https://www.veggjald.is/