Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 19.5.2018

19.5.2018 15:27

Færð

Hálkublettir eru á Steingrímsfjarðarheiði og Þröskuldum. Krapi er á Nesjavallaleið.

Athugið

Vegagerðin vill vekja athygli á því að allri venjubundinni vetrarþjónustu er lokið og verða vegfarendur því að taka mið af því. Ekki eru til staðar öll þau tæki og mannskapur til vetrarþjónustu eins og að vetri til sem hefur áhrif á viðbragðstíma þjónustunnar.

Nú á komandi helgi verður ekkert ferðaveður fyrir bifreiðar með aftanívagna og t.d. húsbíla vegna hvassviðris og svo er jafnvel gert ráð fyrir því að það gæti slyddað á fjallvegum og því gæti myndast hálka sérstaklega að kvöldi og í morgunsárið.

Ábendingar frá veðurfræðingi

Litur: Gulur

Með lægð sem fer hratt hjá fyrir vestan landið gerir hvassan vind um tíma. Fram eftir morgni er gert ráð fyrir  krapa eða snjó á Mosfells- og Hellisheiði. Austan stormur undir Eyjafjöllum frá kl. 10 til 12 og hviður um 35 m/s.  Ekki eins hvass SV- og V-lands, en  hviður um kl. 12  allt að 30 m/s undir Hafnarfjalli og á Reykjanesbraut.

Akstursbann á hálendisvegum

Akstursbann er nú á fjölmörgum hálendisvegum og -slóðum sem eru mjög viðkvæmir meðan frost er að fara úr jörð. Því miður ber talsvert á því að ökumenn virði ekki merkingar um þessar lokanir sem settar eru á til að hlífa bæði vegunum sjálfum og náttúrunni í kringum þá fyrir átroðningi og skemmdum sem auðveldlega verða á þessum árstíma. Því er rétt að árétta að það er beinlínis lögbrot að fara inn á veg framhjá merkinu allur akstur bannaður.

Viðgerð á Miðfjarðarárbrú

Umfangsmikil viðgerð stendur yfir á brúnni yfir Miðfjarðará hjá Laugarbakka og er áætlað að vinnan standi út júlí. Umferð er stýrt með ljósum.

Þungatakmarkanir

Vegna hættu á slitlagsskemmdum þarf sums staðar að takmarka ásþunga umfram það sem almennt gerist. Sjá nánar hér.