Umferðarþjónusta - Tilkynning - 19.1.2019
Færð og aðstæður
Suðvesturland: Hálka er á Reykjanesbraut, Grindavíkurvegi og á Höfuðborgarsvæðinu eins er hálka og á Sandskeiði, Hellisheiði og í Þrengslum. Flughálka er á Suðurstrandarvegi á milli Ísólfsskálavegar og Krýsuvíkurvegar, hálkublettir eða snjóþekja á öðrum leiðum. Snjókoma og éljagangur er á öllu Suðvesturlandi.
Vesturland: Hálka og snjóþekja á fjallvegum eins er snjóþekja, hálka og hálkublettir á láglendi. Éljagangur nokkuð víða. Flughálka er á Dragavegi upp úr Hvalfirði og á Skorradalsvegi.
Vestfirðir: Flughálka er á Mikladal, Klettshálsi og í Ísafirði annars er vetrarfærð mjög víða hálka eða snjóþekja. Ófært er yfir Dynjandisheiði og Hrafnseyrarheiði.
Norðurland: Vetrarfærð, hálka eða hálkublettir en snjóþekja á útvegum.
Norðausturland: Hálka og hálkublettir á Norðausturvegi (85) og hálka í Aðaldal og í Mývatnssveit. Snjóþekja og skafrenningur er inn til landsins.
Austurland: Snjóþekja og hálka er á Héraði en þæfingur er á Hróarstunguvegi eins er hálka á Fagradal og snjóþekja á Fjarðarheiði. Hálka er með ströndinni. Ófært er um Breiðdalsheiði og Öxi.
Suðausturland: Vetrarfærð er með suðausturströndinni, hálka eða hálkublettir.
Suðurland: Hálka, snjóþekja og hálkublettir eru á öllu svæðinu en flughálka er á Rangárvallavegi, Árbæjarvegi og Þingskálavegi.
Framkvæmdir
Unnið verður á Kringlumýrarbrautar til suðurs á morgun laugardaginn 19. janúar frá kl. 06:00 og fram eftir degi við viðgerð á ljósleiðara. Vinnusvæðið er til móts við N1 í Fossvogi.
Hraði um vinnusvæðið er lækkaður í 50 km/klst. og eru vegfarendur beðnir að sýna aðgát og virða merkingar.
Framkvæmdir á Suðurlandsvegi
Vegna vinnu við að breikka Hringveginn er hámarkshraði takmarkaður við 70 km/klst á um 3 km kafla frá Hveragerði austur að Kotstrandarkirkju.
Á afmörkuðum svæðum við Varmá og austur fyrir gatnamót að
Ölfusborgum er hámarkshraði takmarkaður við 50 km/klst. Einnig á vestri enda Hvammsvegar við gatnamót Hringvegar. Framúrakstur er bannaður á framkvæmdarsvæði. - Áætluð verklok eru 1. mars nk.
Fjaðrárgljúfur lokað
Vakin er athygli á að Umhverfisstofnun hefur lokað Fjaðrárgljúfri en lokunin verður endurskoðuð ekki síðar en 23. janúar. Þetta er gert bæði af öryggisástæðum og til að koma í veg fyrir frekari gróðurskemmdir á svæðinu. Bílastæðið er einnig lokað og ekki er hægt að leggja bílum í næsta nágrenni við svæðið.
Vaðlaheiðargöng
Leiðbeiningar um verð og greiðsluleiðir er að finna á vefnum https://www.veggjald.is/