Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 19.1.2019

19.1.2019 14:29

Færð og aðstæður

Suðvesturland: Hálka, hálkublettir og snjóþekja er á öllum leiðum. Flughálka er á Suðurstrandarvegi á milli Ísólfsskálavegar og Krýsuvíkurvegar.

Vesturland: Hálka, snjóþekja og snjókoma er á öllu svæðinu.

Vestfirðir: Hálka eða snjóþekja á vegum. Ófært er yfir Dynjandisheiði og Hrafnseyrarheiði.

Norðurland: Vetrarfærð, hálka eða hálkublettir en snjóþekja á útvegum.

Norðausturland: Hálka og hálkublettir á Norðausturvegi (85) og hálka í Aðaldal og í Mývatnssveit. Snjóþekja og skafrenningur er inn til landsins.  

Austurland: Snjóþekja og hálka er á Héraði en þæfingur er á Hróarstunguvegi eins er hálka á Fagradal og snjóþekja á Fjarðarheiði. Hálka og hálkublettir eru með ströndinni. Ófært er um Breiðdalsheiði og Öxi.

Suðausturland: Vetrarfærð er með suðausturströndinni, hálka eða hálkublettir.

Suðurland: Hálka, snjóþekja og snjókoma er á öllu svæðinu en flughálka er á Rangárvallavegi, Árbæjarvegi og Þingskálavegi.

Framkvæmdir

Unnið verður á Kringlumýrarbrautar til suðurs á morgun laugardaginn 19. janúar frá kl. 06:00 og fram eftir degi við viðgerð á ljósleiðara. Vinnusvæðið er til móts við N1 í Fossvogi.

Hraði um vinnusvæðið er lækkaður í 50 km/klst. og eru vegfarendur beðnir að sýna aðgát og virða merkingar.

Framkvæmdir á Suðurlandsvegi

Vegna vinnu við að breikka Hringveginn er hámarkshraði takmarkaður við 70 km/klst á um 3 km kafla frá Hveragerði austur að Kotstrandarkirkju.

Á afmörkuðum svæðum við Varmá og austur fyrir gatnamót að Ölfusborgum er hámarkshraði takmarkaður við 50 km/klst. Einnig á vestri enda Hvammsvegar við gatnamót Hringvegar. Framúrakstur er bannaður á framkvæmdarsvæði. - Áætluð verklok eru 1. mars nk.

Fjaðrárgljúfur lokað

Vakin er athygli á að Umhverfisstofnun hefur lokað Fjaðrárgljúfri en lokunin verður endurskoðuð ekki síðar en 23. janúar. Þetta er gert bæði af öryggisástæðum og til að koma í veg fyrir frekari gróðurskemmdir á svæðinu. Bílastæðið er einnig lokað og ekki er hægt að leggja bílum í næsta nágrenni við svæðið.

Vaðlaheiðargöng

Leiðbeiningar um verð og greiðsluleiðir er að finna á vefnum https://www.veggjald.is/