Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 19.1.2019

19.1.2019 7:53

Færð og aðstæður

Suðvesturland: Aðalleiðir eru að mestu greiðfærar en sumstaðar er krap eða hálkublettir á fáfarnari vegum.

Vesturland: Hálka er á Holtavörðuheiði og Fróðárheiði en snjóþekja á Bröttubrekku. Hálka eða hálkublettir eru mjög víða.

Vestfirðir: Flughálka er á Mikladal og Klettshálsi annars er vetrarfærð mjög víða hálka eða snjóþekja. Ófært er yfir Dynjandisheiði og Hrafnseyrarheiði.

Norðurland: Vetrarfærð, hálka eða hálkublettir en snjóþekja á útvegum.

Norðausturland: Hálka og snjóþekja á Norðausturvegi (85) og hálka í Aðaldal, þæfingur er á Hófaskarði. Snjóþekja og skafrenningur er inn til landsins.  

Austurland: Snjóþekja er á Héraði en hálka á Fagradal. Hálka og snjóþekja er með ströndinni. Ófært er um Breiðdalsheiði og Öxi.

Suðausturland: Vetrarfærð er með suðausturströndinni, hálka eða hálkublettir.

Suðurland: Þar er víðast hvar nokkur hálka, krapi eða snjóþekja en þjóðvegurinn er greiðfær.  Flughálka er á Rangárvallavegi, Árbæjarvegi og Þingskálavegi.

Framkvæmdir

Unnið verður á Kringlumýrarbrautar til suðurs á morgun laugardaginn 19. janúar frá kl. 06:00 og fram eftir degi við viðgerð á ljósleiðara. Vinnusvæðið er til móts við N1 í Fossvogi.

Hraði um vinnusvæðið er lækkaður í 50 km/klst. og eru vegfarendur beðnir að sýna aðgát og virða merkingar.

Framkvæmdir á Suðurlandsvegi

Vegna vinnu við að breikka Hringveginn er hámarkshraði takmarkaður við 70 km/klst á um 3 km kafla frá Hveragerði austur að Kotstrandarkirkju.

Á afmörkuðum svæðum við Varmá og austur fyrir gatnamót að Ölfusborgum er hámarkshraði takmarkaður við 50 km/klst. Einnig á vestri enda Hvammsvegar við gatnamót Hringvegar. Framúrakstur er bannaður á framkvæmdarsvæði. - Áætluð verklok eru 1. mars nk.

Fjaðrárgljúfur lokað

Vakin er athygli á að Umhverfisstofnun hefur lokað Fjaðrárgljúfri en lokunin verður endurskoðuð ekki síðar en 23. janúar. Þetta er gert bæði af öryggisástæðum og til að koma í veg fyrir frekari gróðurskemmdir á svæðinu. Bílastæðið er einnig lokað og ekki er hægt að leggja bílum í næsta nágrenni við svæðið.

Vaðlaheiðargöng

Leiðbeiningar um verð og greiðsluleiðir er að finna á vefnum https://www.veggjald.is/