Umferðarþjónusta - Tilkynning - 18.9.2018
Framkvæmdir
Þriðjudaginn 18. september er stefnt að því að malbika báðar akreinar og gatnamót á Vesturlandsvegi við Borgarfjarðarbraut. Annarri akreininni verður lokað í einu og umferð stýrt í gegnum vinnusvæðið. Búast má við umferðartöfum. Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli kl. 08.00 og 22.00.
Þriðjudaginn 18. september verður viðgerðarvinnu á aðreinum og fráreinum á gatnamótum Reykjanesbrautar, Strandgötu og Ásbrautar. Vinnusvæðum verður lokað og viðeigandi merkingar verða settar upp meðan á framkvæmdum stendur en búast má við einhverjum umferðartöfum. Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir frá kl. 9:00 til kl. 18:00.
Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin sem eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.
Hvalfjarðargöng verða lokuð fjórar nætur vegna viðhalds
Hvalfjarðargöng verða lokuð næstu þrjár nætur vegna viðhalds og hreingerningar frá miðnætti til kl 06:00 að morgni
Framkvæmdir við Esjumela
Á næstu vikum verður unnið að byggingu hringtorgs og undirganga fyrir gangandi auk vega- og stígagerðar á Esjumelum við Norðurgrafarveg og verður umferð um Vesturlandsveg beint um hjáleið framhjá vinnusvæðinu. Hámarkshraði um framkvæmdasvæðið er 50 km/klst og eru ökumenn hvattir til að virða merkingar á vinnusvæðinu.