Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 18.5.2018

18.5.2018 8:39

Athugið

Vegagerðin vill vekja athygli á því að vetrarþjónustu er lokið og verða vegfarendur því að taka mið af því.

Nú á komandi helgi verður ekkert ferðaveður fyrir bifreiðar með aftanívagna og t.d. húsbíla vegna hvassviðris og svo er jafnvel gert ráð fyrir því að það gæti slyddað á fjallvegum og því gæti myndast hálka sérstaklega að kvöldi og í morgunsárið.

Færð

Hálkublettir eru á Hrafnseyrarheiði og krapi er á Kleifaheiði.

Akstursbann á hálendisvegum

Akstursbann er nú á fjölmörgum hálendisvegum og -slóðum sem eru mjög viðkvæmir meðan frost er að fara úr jörð. Því miður ber talsvert á því að ökumenn virði ekki merkingar um þessar lokanir sem settar eru á til að hlífa bæði vegunum sjálfum og náttúrunni í kringum þá fyrir átroðningi og skemmdum sem auðveldlega verða á þessum árstíma. Því er rétt að árétta að það er beinlínis lögbrot að fara inn á veg framhjá merkinu allur akstur bannaður.

Viðgerð á Miðfjarðarárbrú

Umfangsmikil viðgerð stendur yfir á brúnni yfir Miðfjarðará hjá Laugarbakka og er áætlað að vinnan standi út júlí. Umferð er stýrt með ljósum.

Þungatakmarkanir

Vegna hættu á slitlagsskemmdum þarf sums staðar að takmarka ásþunga umfram það sem almennt gerist. Sjá nánar hér.