Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 18.1.2019

18.1.2019 15:41

Frá veðurfræðingi

18. jan. kl. 10:30 

Rétt er að vekja athygli vegfarenda á því að til morguns verður hiti mjög víða á landinu alveg við frostmark og úrkoma fellur mikið til sem bleytusnjór eða slydda. Ísing og hálka verður viðvarandi við þessar aðstæður, Hlýnar heldur í fyrramálið áður en kólnar aftur seinnipartinn.  

Færð og aðstæður

Suðvesturland: Aðalleiðir eru að mestu greiðfærar en sumstaðar er krap eða hálka á fáfarnari vegum.

Vesturland: Snjóþekja eða hálka á flestum vegum og sumstaðar ofankoma.

Vestfirðir: Mikið autt eða í hálkublettum við Breiðafjörð en meiri hálka á öðrum leiðum. Ófært er yfir Dynjandisheiði og Hrafnseyrarheiði en búið er að opna norður í Árneshrepp.

Norðurland: Hálka á aðalleiðum en snjóþekja á útvegum.

Norðausturland: Hálka víðast hvar og sumstaðar éljagangur til landsins. 

Austurland: Snjóþekja eða hálka og víða ofankoma. Ófært er um Breiðdalsheiði og Öxi.

Suðausturland: Það er hálka meira og minna með suðausturströndinni.

Suðurland: Þar er víðast hvar nokkur hálka, krapi eða snjóþekja.  

Framkvæmdir

Unnið verður á Kringlumýrarbrautar til suðurs á morgun laugardaginn 19. janúar frá kl. 06:00 og fram eftir degi við viðgerð á ljósleiðara. Vinnusvæðið er til móts við N1 í Fossvogi.

Hraði um vinnusvæðið er lækkaður í 50 km/klst. og eru vegfarendur beðnir að sýna aðgát og virða merkingar.

Framkvæmdir á Suðurlandsvegi

Vegna vinnu við að breikka Hringveginn er hámarkshraði takmarkaður við 70 km/klst á um 3 km kafla frá Hveragerði austur að Kotstrandarkirkju.

Á afmörkuðum svæðum við Varmá og austur fyrir gatnamót að Ölfusborgum er hámarkshraði takmarkaður við 50 km/klst. Einnig á vestri enda Hvammsvegar við gatnamót Hringvegar. Framúrakstur er bannaður á framkvæmdarsvæði. - Áætluð verklok eru 1. mars nk.

Fjaðrárgljúfur lokað

Vakin er athygli á að Umhverfisstofnun hefur lokað Fjaðrárgljúfri en lokunin verður endurskoðuð ekki síðar en 23. janúar. Þetta er gert bæði af öryggisástæðum og til að koma í veg fyrir frekari gróðurskemmdir á svæðinu. Bílastæðið er einnig lokað og ekki er hægt að leggja bílum í næsta nágrenni við svæðið.

Vaðlaheiðargöng

Leiðbeiningar um verð og greiðsluleiðir er að finna á vefnum https://www.veggjald.is/