Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 18.1.2019

18.1.2019 9:36

Færð og aðstæður

Yfirlit: Vetrarfærð er í flestum landshlutum, þó síst á Suðvesturlandi. Hvergi er spáð hvössum vindi. Þar sem hiti er um og yfir frostmarki má búast við slæmri hálku meðan snjó og hálku er að taka upp.

Suðvesturland: Aðalleiðir eru að mestu greiðfærar en sumstaðar er krap eða hálka á fáfarnari vegum, raunar flughált á Krýsuvíkurvegi, á kafla vestan Grindavíkur og á Meðalfellsvegi.

Vesturland: Snjóþekja eða hálka á flestum vegum og sumstaðar ofankoma.

Vestfirðir: Mikið autt við Breiðafjörð en meiri hálka á öðrum leiðum. Ófært er yfir Dynjandisheiði og Hrafnseyrarheiði en verið er að opna norður í Árneshrepp.

Norðurland: Hálka eða snjóþekja og sumstaðar éljagangur.

Norðausturland: Snjóþekja og hálka og éljagangur til landsins. 

Austurland: Snjóþekja eða hálka og víða ofankoma. Ófært er um Breiðdalsheiði og Öxi.

Suðausturland: Það er hálka meira og minna með suðausturströndinni.

Suðurland: Þar er víðast hvar nokkur hálka, krapi eða snjóþekja. Sumstaðar er raunar flughált á útvegum. 

Framkvæmdir á Suðurlandsvegi

Vegna vinnu við að breikka Hringveginn er hámarkshraði takmarkaður við 70 km/klst á um 3 km kafla frá Hveragerði austur að Kotstrandarkirkju.

Á afmörkuðum svæðum við Varmá og austur fyrir gatnamót að Ölfusborgum er hámarkshraði takmarkaður við 50 km/klst. Einnig á vestri enda Hvammsvegar við gatnamót Hringvegar. Framúrakstur er bannaður á framkvæmdarsvæði. - Áætluð verklok eru 1. mars nk.

Fjaðrárgljúfur lokað

Vakin er athygli á að Umhverfisstofnun hefur lokað Fjaðrárgljúfri en lokunin verður endurskoðuð ekki síðar en 23. janúar. Þetta er gert bæði af öryggisástæðum og til að koma í veg fyrir frekari gróðurskemmdir á svæðinu. Bílastæðið er einnig lokað og ekki er hægt að leggja bílum í næsta nágrenni við svæðið.

Vaðlaheiðargöng

Leiðbeiningar um verð og greiðsluleiðir er að finna á vefnum https://www.veggjald.is/