Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 18.1.2019

18.1.2019 7:07

Færð og aðstæður

Yfirlit: Vetrarfærð er í öllum landshlutum en þó síst á Suðvesturlandi. Hvergi er spáð hvössum vindi. Þar sem hiti er um og yfir frostmarki má búast við slæmri hálku meðan snjó og hálku er að taka upp.

Suðvesturland: Hálkublettir eru m.a. á Hellisheiði en snjóþekja á Mosfellsheiði. Annars eru aðalleiðir greiðfærar en sumstaðar er krap eða hálka á fáfarnari vegum, raunar flughált á Krýsuvíkurvegi og á kafla vestan Grindavíkur.

Vesturland: Víða éljagangur, og snjóþekja eða hálka á flestum vegum.

Vestfirðir: Mikið autt við Breiðafjörð en meiri hálka á öðrum leiðum. Ófært er norður í Árneshrepp sem og um Dynjandis- og Hrafnseyrarheiðar.

Norðurland: Snjóþekja og hálka um allt svæðið og sumstaðar éljagangur.

Norðausturland: Snjóþekja og hálka víðast hvar og éljagangur. 

Austurland: Snjóþekja eða hálka og víða ofankoma. Ófært er um Breiðdalsheiði og Öxi.

Suðausturland: Það er hálka meira og minna með suðausturströndinni. Hiti er á köflum yfir frostmarki og þar má búast við leiðinlegum aðstæðum.

Suðurland: Þar er víðast hvar nokkur hálka, krapi eða snjóþekja. Sumstaðar er raunar flughált á útvegum. 

Framkvæmdir á Suðurlandsvegi

Vegna vinnu við að breikka Hringveginn er hámarkshraði takmarkaður við 70 km/klst á um 3 km kafla frá Hveragerði austur að Kotstrandarkirkju.

Á afmörkuðum svæðum við Varmá og austur fyrir gatnamót að Ölfusborgum er hámarkshraði takmarkaður við 50 km/klst. Einnig á vestri enda Hvammsvegar við gatnamót Hringvegar. Framúrakstur er bannaður á framkvæmdarsvæði. - Áætluð verklok eru 1. mars nk.

Fjaðrárgljúfur lokað

Vakin er athygli á að Umhverfisstofnun hefur lokað Fjaðrárgljúfri en lokunin verður endurskoðuð ekki síðar en 23. janúar. Þetta er gert bæði af öryggisástæðum og til að koma í veg fyrir frekari gróðurskemmdir á svæðinu. Bílastæðið er einnig lokað og ekki er hægt að leggja bílum í næsta nágrenni við svæðið.

Vaðlaheiðargöng

Leiðbeiningar um verð og greiðsluleiðir er að finna á vefnum https://www.veggjald.is/