Umferðarþjónusta - Tilkynning - 18.10.2017
Færð
Á Norðurlandi eru hálkublettir á Mývatnsöræfum, Dettifossvegi og Hófaskarði.
Lokun á Hvalfjarðargöngum
Hvalfjarðargöng verða lokuð fyrir umferð í nótt (42. viku) vegna viðhalds og hreingerningar.
Lokað verður
aðfaranótt fimmtudagsins 19. október frá
miðnætti til kl. 6 að morgni.
Það er árlegur viðburður í rekstri ganganna að loka þeim í nokkrar nætur að vori og hausti af þessu tilefni. Lokun nú er því hefðbundin ráðstöfun og beðist er velvirðingar á óþægindum sem hún kann að valda.
Framkvæmdir á Krýsuvíkurvegi
Unnið er við mislæg vegamót Reykjanesbrautar og Krýsuvíkurvegar í Hafnarfirði. Umferð fer á kafla um hjáleið á Reykjanesbraut sunnan Hafnarfjarðar. Leyfður umferðarhraði þar er 50 km/klst. Vegna sprenginga þarf að stöðva umferð á Reykjanesbraut í stutta stund, allt að þrisvar sinnum á dag.
Hálendisvegir
Vegir á hálendinu eru nú flestir orðnir ófærir og allur akstur er bannaður á vegi 864 fyrir austan Jökulsá á fjöllum vegna skemmda á vegi.