Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 18.10.2017

18.10.2017 6:40

Ábendingar frá veðurfræðingi

LITUR: GULUR

Með morgninum má gera ráð fyrir hviðum allt að 30 m/s á Reykjanesbraut samfara slagveðursrigningu, 30-35 m/s á Kjalarnesi og undir Hafnarfjalli. Að sama skapi undir Eyjafjöllum.  Aðeins lítið eitt mun draga úr þessum hvassa vindi á morgun. 

Færð

Á Norðurlandi eru hálkublettir á Mývatnsöræfum, Dettifossvegi og Hófaskarði.

Lokun á Hvalfjarðargöngum

Hvalfjarðargöng verða lokuð fyrir umferð í nótt (42. viku) vegna viðhalds og hreingerningar.

Lokað verður aðfaranótt  fimmtudagsins 19. október frá miðnætti til kl. 6 að morgni.

Það er árlegur viðburður í rekstri ganganna að loka þeim í nokkrar nætur að vori og hausti af þessu tilefni. Lokun nú er því hefðbundin ráðstöfun og beðist er velvirðingar á óþægindum sem hún kann að valda.

Framkvæmdir á Krýsuvíkurvegi 

Unnið er við mislæg vegamót Reykjanesbrautar og Krýsuvíkurvegar í Hafnarfirði. Umferð fer á kafla um hjáleið á Reykjanesbraut sunnan Hafnarfjarðar. Leyfður umferðarhraði þar er 50 km/klst. Vegna sprenginga þarf að stöðva umferð á Reykjanesbraut í stutta stund, allt að þrisvar sinnum á dag.

Hálendisvegir

Vegir á hálendinu eru nú flestir orðnir ófærir og allur akstur er bannaður á vegi 864 fyrir austan Jökulsá á fjöllum vegna skemmda á vegi.