Umferðarþjónusta - Tilkynning - 17.8.2017
Fjarðarheiði er lokuð
Fjarðarheiði milli Egilsstaða og Seyðisfjarðar er lokuð
vegna umferðaróhapps efst á heiðinni en þar er nú mikil þoka. Einhvern tíma mun taka að koma bifreiðum í
burtu.
Framkvæmdir
Í kvöld, fimmtudaginn
17. ágúst er stefnt að því að fræsa og malbika hægri akrein á Hringbraut til austurs frá gatnamótum við BSÍ og áfram austur Miklubraut áleiðis að Lönguhlíð. Akreininni verður lokað, umferðarhraði lækkaður framhjá vinnusvæðinu og má
búast við lítilsháttar umferðartöfum. Áætlað er að vinnan hefjist kl. 18:00 en á miðnætti verður
svæðinu lokað alveg. Verkinu á að vera lokið fyrir klukkan sex í fyrramálið.
Vegna veðurs náðist ekki að klára malbikun á Hellisheiði sem ljúka átti í gær og því er stefnt að því að ljúka verkinu í kvöld og nótt. Um er að ræða 1200 m kafla efst í Skíðaskálabrekku á akrein til austurs. Lokað verður fyrir umferð til austurs um Suðurlandsveg og umferð beint um Þrengslaveg. Umferð sem á erindi í Hellisheiðarvirkjun verður hleypt framhjá en umferð til vesturs verður ótrufluð. Áætlað er að vinnan standi yfir milli 19:00 og 03:00. - Vegfarendur eru beðnir að virða merkingar og sýna aðgát við vinnusvæðin sem eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.
Vegna þeirra tafa sem orðið hafa á vinnunni á Hellisheiði munu malbikunarframkvæmdir á Bústaðavegi einnig frestast og verða auglýstar síðar.Krýsuvíkurvegur - framkvæmdir við nýtt hringtorg
Í dag kl. 18:00 mun Krýsuvíkurvegi (42) verða lokað að hluta. Um er að ræða
tímabundna lokun vegkafla á Krýsuvíkurvegi, milli hringtorgs við
Hraunhellu annars vegar og gatnamóta við Ásbraut hins vegar. Umferð ökutækja
verður beint inn hjá hjáleið um Hraunhellu, Suðurhellu og Ásbraut að
Krýsuvíkurvegi.
Framkvæmdir á Reykjanesbraut og Krýsuvíkurvegi
Verið er að gera tvö hringtorg á Reykjanesbraut,
annars vegar við Aðalgötu og hins vegar við Þjóðbraut. Umferð hefur verið hleypt á hringtorgið við
Aðalgötu en Aðalgata verður lokuð fram í
byrjun september. Ökumönnum er bent á hjáleið yfir á Þjóðbraut eða að aka um
Garðaveg. Verkinu í heild á að ljúka í
september.
Unnið er við mislæg vegamót Reykjanesbrautar og Krýsuvíkurvegar í Hafnarfirði. Umferð fer á kafla um hjáleið á Reykjanesbraut sunnan Hafnarfjarðar. Leyfður umferðarhraði þar er 50 km/klst. Vegna sprenginga þarf að stöðva umferð á Reykjanesbraut í stutta stund, allt að þrisvar sinnum á dag.
Verið er að byggja nýtt hringtorg á Krýsuvíkurvegi (42), en um er að ræða gatnatengingar að Dofrahellu og Ásvallabraut (Klukkutorg). Gert er ráð fyrir að hringtorgið verði tekið í notkun 1. september 2017.
Borgarfjarðarbrú
Nú er unnið að lokaáfanga gólfviðgerðar á Borgarfjarðarbrú. Umferð er stýrt með ljósum. Verkinu á að ljúka 14. nóvember.
Vaðlaheiðarvegur
Vaðlaheiðarvegur 832 er opinn að hluta, þ.e. 12 km kafli upp úr Eyjafirði en vegna framkvæmda við Vaðlaheiðargöng í Fnjóskadal er ekki hægt að láta umferð fara um vinnusvæðið við Skóga. Því er veginum lokað við Ytra Nesgil og öll umferð upp úr Fnjóskadal er bönnuð.