Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 17.8.2017

17.8.2017 10:58

Framkvæmdir

Í kvöld, fimmtudaginn 17. ágúst er stefnt að því að fræsa og malbika hægri akrein á Hringbraut til austurs frá gatnamótum við BSÍ og áfram austur Miklubraut áleiðis að Lönguhlíð. Akreininni verður lokað, umferðarhraði lækkaður framhjá vinnusvæðinu og má búast við lítilsháttar umferðartöfum. Áætlað er að vinnan hefjist kl. 18:00 en á miðnætti verður svæðinu lokað alveg. Verkinu á að vera lokið fyrir klukkan sex í fyrramálið.

Vegna veðurs náðist ekki að klára malbikun á Hellisheiði sem ljúka átti í gær og því er stefnt að  því að ljúka verkinu í kvöld og nótt. Um er að ræða 1200 m kafla efst í Skíðaskálabrekku á akrein til austurs. Lokað verður fyrir umferð til austurs um Suðurlandsveg og umferð beint um Þrengslaveg. Umferð sem á erindi í Hellisheiðarvirkjun verður hleypt framhjá en umferð til vesturs verður ótrufluð.  Áætlað er að vinnan standi yfir milli 19:00 og 03:00. - Vegfarendur eru beðnir að virða merkingar og  sýna aðgát við vinnusvæðin sem eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.

Vegna þeirra tafa sem orðið hafa á vinnunni á Hellisheiði munu malbikunarframkvæmdir á Bústaðavegi einnig frestast og verða auglýstar síðar.

Framkvæmdir á Reykjanesbraut og Krýsuvíkurvegi 

Verið er að gera tvö hringtorg á Reykjanesbraut, annars vegar við Aðalgötu og hins vegar við Þjóðbraut. Umferð hefur verið hleypt á hringtorgið við Aðalgötu en Aðalgata verður lokuð fram í byrjun september. Ökumönnum er bent á hjáleið yfir á Þjóðbraut eða að aka um Garðaveg.  Verkinu í heild á að ljúka í september.

Unnið er við mislæg vegamót Reykjanesbrautar og Krýsuvíkurvegar í Hafnarfirði. Umferð fer á kafla um hjáleið á Reykjanesbraut sunnan Hafnarfjarðar. Leyfður umferðarhraði þar er 50 km/klst. Vegna sprenginga þarf að stöðva umferð á Reykjanesbraut í stutta stund, allt að þrisvar sinnum á dag.

Verið er að byggja nýtt hringtorg á  Krýsuvíkurvegi (42), en um er að ræða gatnatengingar að Dofrahellu og Ásvallabraut (Klukkutorg).  Gert er ráð fyrir að hringtorgið verði tekið í notkun 1. september 2017.

Borgarfjarðarbrú

Nú er unnið að lokaáfanga gólfviðgerðar á Borgarfjarðarbrú. Umferð er stýrt með ljósum. Verkinu á að ljúka 14. nóvember.

Vaðlaheiðarvegur

Vaðlaheiðarvegur 832 er opinn að hluta, þ.e. 12 km kafli upp úr Eyjafirði en vegna framkvæmda við Vaðlaheiðargöng í Fnjóskadal er ekki hægt að láta umferð fara um vinnusvæðið við Skóga. Því er veginum lokað við Ytra Nesgil og öll umferð upp úr Fnjóskadal er bönnuð.

Hálendiskort

Sjá hér